Fara í efni

Fleiri fæðubótarefni sem innihalda lyf við ristruflunum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Þann 25. Janúar sl. greindi MAST frá því að Spænska Lyfjastofnunin (Agencia Española de Medicamentos y Productos Sanitarios, AEMPS) hafi greint virk lyfjaefni sem notuð eru við ristruflunum, í nokkrum fæðubótarefnum, án þess að þeirra væri getið í innihaldslýsingum varanna. 

MAST hafa nú borist upplýsingar frá AEMPS um fjórar vörur til viðbótar sem einnig innihalda slík lyfjaefni. 

Lyfjaefni sem þessi ætti aldrei að nota nema í samráði við lækni, í formi lyfja sem hafa markaðsleyfi, þar sem þau geta verið skaðleg heilsu séu þau ekki notuð á réttan hátt.  Vara/fæðubótarefni sem inniheldur þessi lyfjaefni telst hættulegt matvæli, sérstaklega þegar efnanna er ekki getið á umbúðum varanna.

Skv. 11. gr. matvælalaga er innflutningur og dreifing matvæla þ.m.t. fæðubótarefna sem innihalda lyf eða lyfjavirk efni, óheimil.  Auk þess er skv.8.gr. matvælalaga óheimilt að markaðssetja matvæli sem eru ekki örugg til neyslu þ.e. heilsuspillandi.  Umræddar vörur eru því ólöglegar til innflutnings og markaðssetningar.

Meðfylgjandi er listi yfir vöruheitin:
 

  • Male Tonic Enhancer Extra Strong 6 herbal capsules 
  • Doimas 
  • Start Up for Him 
  • V Ultimate 

Fæðubótarefni eru matvæli sem almennt eru í frjálsu flæði til landsins og því fyrst og fremst undir markaðseftirliti. Eftirlit með fæðubótarefnum á markað er í höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Innflutningseftirlit er í höndum MAST og síðustu ár hefur innflutningseftirlit með fæðubótarefni verið talsvert aukið.

Samkvæmt reglugerð um fæðubótarefni er innlendum framleiðanda/innflytjanda skylt að tilkynna innflutning/markaðssetningu nýrra fæðubótarefni til MAST. Viðkomandi vörur hafa ekki verið tilkynntar til MAST og hefur stofnunin því ekki upplýsingar að vörurnar séu á almennum markaði hér á landi. Hinsvegar eru vörurnar allar eða hafa verið til sölu í póstverslun í gegnum internetið. MAST hefur gert heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga viðvart um umræddar vörur og beinir því til neytenda að hafa samband við viðkomandi heilbrigðiseftirlit hafi þeir upplýsingar um vörurnar á innlendum markaði.

Matvælastofnun hvetur fólk til að kaupa ekki vörurnar eða neyta þeirra þar sem þær geta verið hættulegar heilsu fólks.

Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?