Fara í efni

Enn hætta á að fuglaflensa berist með villtum fuglum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vill minna á að enn er í gildi aukið viðbúnaðarstig vegna hættu á að alvarlegt afbrigði af fuglaflensu geti borist frá villtum fuglum í alifugla og aðra fugla í haldi. Greiningum á fuglaflensu af völdum þessa afbrigðis í Evrópu hefur fækkað en enn eru taldar nokkrar líkur á að það berist með farfuglum hingað til lands. Á fræðslufundi sem Matvælastofnun hélt með alifuglaeigendum í síðustu viku var m.a. farið yfir hvernig brugðist yrði við greiningu á fuglaflensu í villtum fuglum. Matvælastofnun biður fólk um að tilkynna um dauða eða veika villta fugla til stofnunarinnar.

Þann 23. mars s.l. var viðbúnaðarstig vegna fuglaflensu aukið með auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis nr. 241/2017, sem kveður á um auknar smitvarnir.

Síðastliðinn mánuð hefur greiningum á alvarlegu afbrigði fuglaflensu af sermisgerðinni H5N8 fækkað verulega á meginlandi Evrópu og á Bretlandseyjum. Það er að hluta til útskýrt með því að þar er komið vor og í hærra hitastigi minnkar fjöldi virkra fuglaflensuveira hraðar en þegar kalt er. Alvarlegt afbrigði fuglaflensu greindist m.a. á vetrarstöðvum íslensku farfuglanna, sem þeir hafa nú flestir yfirgefið og eru komnir til landsins. Starfshópur, sem skipaður er sérfræðingum Matvælastofnunar, Háskóla Íslands, Tilraunastöðvar HÍ að Keldum og sóttvarnarlæknis, telur að enn sé ekki útilokað að fuglarnir hafi borið veiruna til landsins.

Í síðustu viku hélt Matvælastofnum fræðslufund fyrir fólk sem heldur alifugla í atvinnuskyni. Á fundinum var meðal annars farið yfir til hvaða viðbragða yrði gripið ef alvarlegt afbrigði fuglaflensu finnst í villtum fuglum. Samkvæmt viðbragðsáætlun Matvælastofnunar mun flutningur alifugla, annarra fugla og frjóeggja verða takmarkaður á verndar- og eftirlitssvæðum umhverfis fundarstað villta fuglsins og vöktun á heilbrigði fugla aukið á svæðinu. Hýsa þyrfti alla alifugla og fugla í haldi og gera ýmsar aðrar ráðstafanir til að koma í veg fyrir smitdreifingu eins og kostur er. Greinist alvarlegt afbrigði fuglaflensu í alifuglum eða öðrum fuglum í haldi, er niðurskurður á sýkta hópnum óhjákvæmilegur. Glærur frá fundinum eru aðgengilegar á upplýsingasíðu Matvælastofnunar um fuglaflensu

Matvælastofnun þakkar þeim sem sent hafa inn tilkynningar um dauða fugla. Fram til þessa hafa 19 tilkynningar borist um samtals 49 dauða fugla. Í sumum tilvikum var að mati stofnunarinnar ekki ástæða til sýnatöku og í öðrum voru fuglshræin of gömul eða horfin þegar komið var að til töku sýna. Hingað til hafa því aðeins verið rannsökuð fimm sýni; eitt úr álft og fjögur úr æðarfuglum. Þau voru öll neikvæð. Matvælastofnun hvetur fólk um að vera áfram á verði og tilkynna til stofnunarinnar þegar hræ af villtum fuglum finnast og orsök dauða fuglanna er ekki augljós, svo sem flug á rafmagnslínur, á rúður eða fyrir bíla. Til að tilkynna um dauða fugla er farið á heimasíðu stofnunarinnar, www.mast.is, smellt á hnappinn „sendu ábendingu“ og upplýsingar færðar inn.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?