Fara í efni

Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi FE-1203 Kaldvík hf. Röndin, Kópaskeri.

Matvælastofnun auglýsir tillögu að breytingu á rekstrarleyfi FE-1203 Kaldvík hf., Röndin, Kópaskeri. Um er að ræða breytingu á heimild til notkunar á frjóvguðum laxahrognum frá AquaGen Profunda, landeldisstöð í Noregi. Fyrir hefur rekstaraðili heimild til notkunar á frjóum laxahrognum frá Benchmark Genetics (StofnFiskur).

Matvælastofnun hefur áður fjallað um innflutning frá AquaGen Profunda í sambandi við umsókn Laxeyjar ehf. Laxey ehf. sótti um heimild til að flytja inn frjóvguð hrogn frá AquaGen. Matvælastofnun fór yfir þá umsókn í samræmi við 2. gr. laga nr. 54/1990 um innflutning dýra. Niðurstaða Matvælastofnunar eftir málsmeðferð vegna umsóknar Laxeyjar ehf. var sú að ekki var gerð athugasemd við innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen, Noregi. Innflutningurinn verði bundin við þann uppruna, þann framleiðanda/seljanda og þá tegund hrogna sem sú umsókn tiltók. Innflutningur skal jafnframt háður því að fullnægjandi heilbrigðisvottorð og önnur lögboðin fylgigögn liggi fyrir við hverja sendingu, og að tilkynningar og skráningar vegna innflutnings séu framkvæmdar með þeim hætti sem Matvælastofnun kveður á um.

Matvælastofnun telur rétt, sem lið í almennu eftirliti, rekjanleika og smitvörnum eftir komu til landsins, að móttökueftirlit geti farið fram eftir komu hrognanna á starfsstöð rekstaraðila, í samráði við Matvælastofnun. Nánar er hægt að kynna sér niðurstöðu Matvælastofnunar í fylgiskjali. Matvælastofnun metur það svo að ekki þurfi aðra umfjöllun um innflutning fá sama aðila vegna breytinga á leyfi Kaldvíkur hf. þar sem rekstaraðili þurfi að uppfylla sömu skilyrði.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is merkt 2606452. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 23. september 2026.

Ítarefni

Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi FE-1203

Niðurstaða Matvælastofnunar – AquaGen - Laxey


Getum við bætt efni síðunnar?