Fara í efni

Endurnýjun á rekstrarleyfi Matorku ehf. Fellsmúla

Matvælastofnun auglýsir endurnýjun á rekstrarleyfi Matorku ehf. að Fellsmúla, Hellu. Rekstraraðili hefur verið með leyfi til landeldis að Fellsmúla frá árinu 2016. Auglýst leyfi tekur mið að nýjustu leyfum Matvælastofnunar, stofnunin mun uppfæra skilyrði í leyfi er snúa að rekstraraðila eftir auglýsingu ef tilefni standa til.

Starfsleyfi Umhverfis- og orkustofnunar fyrir starfsemina er í gildi til 4. desember 2030.

Athugasemdir við endurnýjunina skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is merkt 2602393. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 6. maí 2026.

Ítarefni

Rekstrarleyfi Matorku ehf. Fellsmúla


Getum við bætt efni síðunnar?