Fara í efni

Ekki hefur tekist að manna bakvaktir dýralækna að fullu í ágústmánuði

Þrátt fyrir tilraunir hefur enn ekki tekist að tryggja mönnun bakvakta dýralækna á fleiri vaktsvæðum í ágúst.

Á vaktsvæði 1 (Garðabær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Kjósarhreppur, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Voga) er þrír dagar ómannaðir á bakvakt dýralækna fyrir stórgripi og það eru 6., 21. og 23. ágúst.  Animalía mun eftir sem áður sinna bakvöktum fyrir smádýr umdæmisins þessa daga. 

Á vaktsvæði 2 (Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppur) eru ómannaðar bakvaktir dýralækna þann 4., 5., 6., 9., 22., 23. og 31. ágúst. 

 Á vaktsvæði 11 (Sveitarfélagið Hornafjörður og Múlaþing (Djúpivogur og suður af honum)) eru ómannaðar dag og bakvaktir frá og með miðjum ágúst. 

Matvælastofnun harmar þessa stöðu og vill upplýsa dýraeigendur tímanlega svo þeir geti búið sig undir þessa skertu þjónustu. Eigendur dýra sem þurfa á þjónustu dýralæknis að halda á þessum dögum er bent á að hafa samband við þá dýralækna sem hafa þjónustað þá áður eða aðra almennt starfandi dýralækna.

Unnið er að því að finna lausnir á mönnun vakta framangreindra daga og verður fréttin uppfærð ef breytingar verða á stöðunni.

Um bakvaktarfyrirkomulag

Dýralæknar, sem stunda almennar dýralækningar, eiga rétt á og þeim ber skylda til að taka þátt í vaktafyrirkomulagi sem skipulagt er á viðkomandi vaktsvæði samkvæmt lögum um dýralækna Til að tryggja velferð dýra og almenna þjónustu við dýraeigendur skal dýralæknir jafnan vera á bakvakt utan venjulegs dagvinnutíma á hverju vaktsvæði, en dýralæknir telst þó hafa uppfyllt vaktskyldu sína hafi hann sinnt vaktaskyldu sinni með 960 klst. á ári, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 406/2020 um bakvaktir dýralækna. Hlutverk Matvælastofnunar snýr að skipulagi vaktanna.


Getum við bætt efni síðunnar?