Fara í efni

Eigin viðbragðsáætlanir dýraeigenda við náttúruhamförum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Þar sem náttúruhamfarir gera oft ekki boð á undan sér, þurfa dýraeigendur að gera áætlanir um skyndileg viðbrögð við mismunandi vá og undirbúa aðstæður eftir því sem kostur er, með það að markmiði að koma í veg fyrir slys og aðrar þjáningar dýranna. Sér í lagi á þetta við um aðstæður sem valda því að eigendur gætu þurft að yfirgefa dýrin í skyndi. Við gerð viðbragðsáætlana þurfa eigendur að velta fyrir sér hvernig þeir telja að dýrunum sé best borgið miðað við tilteknar aðstæður, s.s. hættu á flóði, öskufalli, ofsaveðri o.s.frv. og gera ráðstafanir í samræmi við það. Jafnframt þurfa þeir að tryggja eftir föngum að til staðar sé nauðsynlegur búnaður fyrir eigið öryggi og dýranna.

Dýraeigendur þurfa einnig að íhuga hvort aðrir geti sinnt dýrunum ef þeir sjálfir eru ekki í stakk búnir til þess. Til að auðvelda björgunarsveitum eða öðrum ókunnugum umhirðu dýranna, ætti hver og einn dýraeigandi að leitast við að hafa eftirtaldar upplýsingar uppfærðar og sýnilegar á staðnum á hverjum tíma: 

  1. Nöfn, heimilisföng og símanúmer þeirra sem þekkja best til
  2. Upplýsingar um hvar finna megi lista yfir dýrin með númerum og/eða öðrum einkennum
  3. Upplýsingar um veikindi dýra, burði og aðra mikilvæga þætti
  4. Upplýsingar um fjölda dýra og staðsetningu þeirra í húsum og beitarhólfum
  5. Kort yfir hús og beitarhólf
  6. Leiðbeiningar um helstu verk, s.s. fóðrun og mjaltir
  7. Upplýsingar um fóður, s.s. staðsetningu og birgðir
  8. Upplýsingar um stjórnun mikilvægs tækjabúnaðar, s.s. mjalta-, fóður- og loftræstikerfis, vararafstöðvar o.s.frv.

Einstaklingsmerkingar dýra eru mikilvægar í þessu sambandi, meðal annars með tilliti til umönnunar og til að koma dýrum sem lent hafa á flækingi til síns heima.

Matvælastofnun hefur nýlega uppfært viðbragðsáætlun sína og er hana að finna í gæðahandbók MAST, en hún tekur aðeins til þeirra þátta sem felast í hlutverki stofnunarinnar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?