Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur birt skýrslu með niðurstöðum úttektar á opinberu eftirliti með framleiðslu á ávöxtum og grænmeti sem fór fram hér á landi 8.-17. september 2025.
Tilgangur úttektarinnar var að meta hvort opinbert eftirlit með tilgreindum afurðum sé í í samræmi við löggjöf EES á sviði matvælaöryggis og að leggja mat á skilvirkni eftirlitsins. Áhersla var á eftirliti með niðurskornum ávöxtum og grænmeti, grænu blaðsalati, berjum og spírum, einkum með tilliti til örverufræðilegs öryggis.
Meginniðurstaða úttektarinnar er að Ísland hefur komið á fót virku opinberu eftirlit með matvælum úr plönturíkinu og að framleiðendur þessara afurða sæta reglubundnu eftirliti. Þó bendir ESA á að ákveðnir veikleikar séu til staðar í efitrlitskerfinu og leggur fram tilmæli um að eftirfarandi atriðið verði bætt:
- Samræmi og samvinna milli mismunandi eftirlitsaðila
- Eftirfylgni þegar upp koma frávik hjá framleiðendum
- Tryggja að sýnatökur og greiningar vegna örveruöryggis séu fullnægjandi og framkvæmdar í samræmi við löggjöf
- Tryggja að framleiðendur spíra framkvæmi viðeigandi sýnatökur og greiningar, eins og löggjöf mælir fyrir um
Niðurstöður eftirlits ESA eru settar fram í lokaskýrslu og með skýrslunni fylgir tímasett úrbótaáætlun yfirvalda (Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga). Vinna við úrbætur er nú hafin.