Fara í efni

Eftirlitsdýralæknir í Suðurlandsumdæmi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni tímabundið á umdæmisskrifstofu stofnunarinnar á Suðurlandi. Um er að ræða frá tímabil frá u.þ.b. 1. febrúar til 31. október 2011. Til greina kemur að viðkomandi sé ráðinn í hluta af ofangreindu tímabili.


Helstu verkefni:


  • Eftirlitsstörf  á sviði dýraverndar og dýravelferðar
  • Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum
  • Samskipti við aðrar stofnanir
  • Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að vera falin


Menntunar- og hæfniskröfur:


  • Dýralæknismenntun
  • Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta


Nánari upplýsingar um starfið veitir Katrín Andrésdóttir, héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis og Hafsteinn Jóh. Hannesson í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “Eftirlitsdýralæknir Suðurland” eða á mast@mast.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2011. Öllum umsóknum verður svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.



Getum við bætt efni síðunnar?