Eftirlitsdýralæknir í Suðurlandsumdæmi
Frétt -
12.11.2010
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni í 100% starf í Suðurlandsumdæmi.
Helstu verkefni:
Helstu verkefni:
- Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsi SS á Selfossi
- Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að vera falin
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Dýralæknismenntun
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar um störfin veita Katrín H. Andrésdóttir, héraðsdýralæknir og Hafsteinn Jóh. Hannesson í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum Eftirlitsdýralæknir á netfangið mast@mast.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2010. Öllum umsóknum verður svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.