Fara í efni

Eftirlitsdýralæknir í Suðausturumdæmi

Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til starfa í Suðausturumdæmi með aðsetur á Selfossi. Um er að ræða fullt starf í metnaðarfullu teymi sem sinnir fjölbreyttu eftirliti á Suður- og Suðausturlandi. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti skv. gildandi lögum og reglugerðum á sviði matvæla og dýravelferðar, heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum, samskiptum við opinberar stofnanir ásamt umsjón með tilteknum málaflokkum á verksviði umdæmisskrifstofunnar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Dýralæknismenntun
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Vilji til teymisvinnu
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið og skil umsókna

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jarle Reiersen héraðsdýralæknir á netfanginu jarle.reiersen@mast.is eða í síma 530 4800. Sótt er um starfið á Starfatorgi.

Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og afrit af prófskírteini. Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í 6 mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands.


Getum við bætt efni síðunnar?