Fara í efni

Eftirlitsdýralæknar í Suðurumdæmi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða tvo eftirlitsdýralækna í fullt starf í Suðurumdæmi frá og með 1. janúar 2012. 

Eftirlitsdýralæknir 1

Helstu verkefni:

  • Eftirlitsstörf  á sviði dýraverndar og dýravelferðar
  • Samskipti við aðrar stofnanir
  • Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum
  • Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að vera falin

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Dýralæknismenntun
  • Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta

Eftirlitsdýralæknir 2

Helstu verkefni:

  • Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum á Selfossi og Hellu
  • Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að vera falin

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Dýralæknismenntun
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

Nánari upplýsingar um störfin veita Gunnar Þorkelsson og Hafsteinn Jóh. Hannesson í síma 530-4800.  Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “Eftirlitsdýralæknir 1”, eða „Eftirlitsdýralæknir 2“ eftir því sem á við, á netfangið starf@mast.is. Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember 2011. Öllum umsóknum verður svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.


Getum við bætt efni síðunnar?