Fara í efni

Eftirlitsdýralæknar í sauðfjárslátrun óskast til starfa í haust

Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?

Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækna til starfa við heilbrigðiseftirlit í sauðfjárslátrun á komandi hausti. Um er að ræða tímabundin störf í u.þ.b. tvo mánuði á eftirfarandi stöðum:

  • Sláturhús SS á Selfossi
  • Sláturhús KVH á Hvammstanga
  • Sláturhús KS á Sauðárkróki
  • Sláturhús Norðlenska á Húsavík
  • Sláturhús Fjallalambs á Kópaskeri

Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.

Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst opinberu eftirliti með dýravelferð, hollustuháttum og heilbrigðisskoðun á kjötskrokkum. Í því felst skoðun á lifandi fé, afurðum og sýnataka.

Eftirlitsdýralæknir fer með faglega ábyrgð á daglegu opinberu eftirliti viðkomandi sláturhúss. Undir þá ábyrgð falla störf eftirlitsfulltrúa í sláturhúsum. Starfinu fylgir gagnasöfnun, ýmsar skráningar og samskipti við tengda aðila. Unnið verður í teymi í stærstu húsunum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Dýralæknanám frá viðurkenndum háskóla
  • Íslenskt starfsleyfi sem dýralæknir
  • Reynsla af sláturhúsastörfum æskileg
  • Reynsla af umgengni við búfé skilyrði
  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Nákvæmni, frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Freydís D. Sigurðardóttir, sérgreinadýralæknir sláturhúsa, á netfanginu freydis.sigurdardottir@mast.is eða í síma 530-4800. Sótt er um starfið á Starfatorgi.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf.

Umsóknarfrestur er til og með 28. mars n.k.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í allt að sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélag Íslands.

Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.


Getum við bætt efni síðunnar?