Fara í efni

Eftirlit með lífrænum vörum frá uppruna til neytanda

Matvælasvindl hefur alltaf verið til, en hefur þróast mjög og tekið nýjar myndir. Nú beinist svindlið í auknum mæli að verðmætari og eftirsóttari afurðum þar sem fjárhagslegur ávinningur er mestur fyrir þá sem setja vöruna á markað. Lífræn ræktun hefur mjög jákvæða ímynd í hugum neytenda og afurðir með lífræna vottun seljast á mun hærra verði en sambærilegar hefðbundnar vörur. Því er mikil hagnaðarvon fyrir milliliði að merkja hefðbundna vöru sem hún væri úr lífrænni ræktun og auka framlegð sína um leið

Mikilvægt er að neytendur fái það sem þeir borga fyrir þegar þeir velja vörur merktar sem lífrænar í matvöruverslunum. Stjórnvöld í EES hafa því valið að hafa sérstakt eftirlit með vörunum á öllum stigum ræktunar, framleiðslu, pökkunar, geymslu, dreifingar og markaðssetningar. Í því augnamiði var gerð breyting á matvælalögum nr. 93/1995 árið 2022 og eru þau nú skýr hvað varðar vottunarskyldu allra sem höndla með lífrænar vörur. Evrópulaufið

Þetta á líka við alla milliliði, heildsala og dreifingarstöðvar. Einungis er undanþága frá vottunarskyldu fyrir smásöluverslanir sem eingöngu afhenda neytendum forpakkaðar vörur og geyma þær á sölustað t.d. hverfisverslanir. Allir aðrir skulu vera undir sérstöku eftirliti með lífrænni framleiðslu og dreifingu.

Nánari upplýsingar um vottunarskyldu er að finna á vef Mast.

Matvælastofnun hefur framselt opinbert eftirlit með lífrænni framleiðslu til Vottunarstofunnar Túns. Þeir sem ekki eru nú þegar með lífræna vottun á sinni starfsemi geta byrjað á því að tilkynna sína starfsemi á þjónustugátt Mast með því að fylla út umsókn nr. 4.49

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?