Fara í efni

Eftirlit með áburði 2017

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun tók 50 áburðarsýni af 50 áburðartegundum á árinu 2017. Við efnamælingar stofnunarinnar kom í ljós að tvær áburðartegundir voru með of lítið magn næringarefna miðað við merkingar. Ein áburðartegund mældist með kadmíum yfir leyfðum mörkum. Óheimilt er að dreifa þessum tegundum til notenda þar til sýnt hefur verið fram á að þær uppfylli kröfur um efnainnihald. Matvælastofnun hefur birt skýrslu yfir áburðareftirlit á árinu 2017

Á árinu 2017 fluttu 26 fyrirtæki inn áburð og jarðvegsbætandi efni alls 328 tegundir. Alls voru flutt inn 56.207 tonn af áburði og jarðvegsbætandi efnum. Innlendir framleiðendur eru 14 á skrá, það eru fyrirtæki sem framleiða áburð eða jarðvegsbætandi efni á landinu. Áburðarfyrirtæki sem voru með skráða starfsemi á árinu eru því 41.

Innflytjendur áburðar, magn í kg, magn næringarefnanna köfnunarefnis (N), fosfórs (P) og kalí (K) sem flutt var inn árið 2017

Sýnataka og vöruskoðun var gerð hjá 5 innflutningsfyrirtækjum og voru alls 50 áburðarsýni af 50 áburðartegundum tekin á árinu. Auk þess voru merkingar og umbúðir skoðaðar. 

Við efnamælingar kom í ljós að 2 áburðartegundir voru með efnainnihaldi undir vikmörkum samkvæmt ákvæðum reglugerða. Ein var með of lítinn fosfór, og 1 með of lítinn brennistein. Ein áburðartegund mældist með kadmíum (Cd) yfir leyfðum mörkum. Þessar 3 tegundir hafa verið teknar af skrá Matvælastofnunar. Allar niðurstöður miðast við uppgefin gildi við skráningu og samkvæmt merkingum á umbúðum. Óheimilt er að dreifa þessum tegundum til notenda þar til sýnt hefur verið fram á að þær uppfylli kröfur um efnainnihald.

Kadmíum (Cd) var mælt í öllum áburðartegundum sem innihalda fosfór. Efnið var oftast undir mælanlegum mörkum og alltaf, nema í einu tilfelli undir leyfðu hámarki sem er 50 mg/kg P.

Fáar athugasemdir voru gerðar við merkingar, en helstu gallar voru vegna misræmis milli skráninga og merkinga einnig voru merkingar máðar í nokkrum tilfellum. Þá voru gerðar athugasemdir ef merkingar voru ekki á íslensku.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?