Eftirfylgni úttekt Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) með opinberu eftirliti með velferð dýra við aflífun
Frétt -
16.12.2025
Tveir Úttektaraðilar á vegum ESA komu til Íslands 13 – 16 okt. síðastliðin til að fylgja eftir úttekt vegna verndar dýra í sláturhúsum sem upphaflega var frá 2021. Farið var í 4 sláturhús mismunandi tegunda og einnig á 2 umdæmisskrifsstofur stofnunarinnar.
Fylgt var eftir 5 athugasemdum sem stóðu útaf eftir fyrri úttekt og niðurstaðan eftir ESA eftirfylgni-úttektina var sú að 3 var lokað eftir úrbætur. Ein er enn í framþróun en sú tengist áhættumati á sláturhúsum og ein fékk ákvörðunina „úrbóta er enn þörf“ sem tengist þjálfunaráætlun stofnunarinnar. Stofnunin hyggst bæta úr síðastnefndu athugasemdinni innan 6 mánaða en þróun á áhættumati sláturhúsa er áætlað að klárist í lok næsta árs.