Dýralæknir nautgripa- og sauðfjársjúkdóma
Frétt -
11.08.2008
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun óskar eftir að ráða í starf dýralæknis nautgripa- og sauðfjársjúkdóma. Um fullt starf er að ræða á aðalskrifstofu stofnunarinar á Selfossi frá og með 1. október 2008.
Helstu verkefni:
- Vinna að bættu heilbrigði nautgripa og sauðfjár og sjúkdómavörnum á þeim sviðum
- Upplýsinga- og gagnaöflun ásamt skýrslugerð
- Samskipti við innlendar og erlendar stofnanir innan sinnar sérgreinar
- Frumkvæði að framkvæmd nauðsynlegra rannsókna og sýnatökur
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Dýralæknismenntun
- Sérmenntun á sviði nautgripa- eða sauðfjársjúkdóma æskileg
- Kostur að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Skipulags- og samskiptahæfileikar
- Góð tölvu- og tungumálakunnátta