Fara í efni

Dýralæknaþjónusta í dreifðari byggðum landsins

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralæknum til að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu í dreifðari byggðum landsins í samræmi við reglugerð nr. 846/2011. Með reglugerðinni er ætlað að tryggja dýraeigendum nauðsynlega almenna þjónustu og bráðaþjónustu við dýr á landssvæðum þar sem fjöldi dýra er takmarkaður  og/eða verkefni dýralækna af skornum skammti.

Gerður verður þjónustusamningur við viðkomandi dýralækni/dýralækna á hverju þjónustusvæði fyrir sig.  MAST tryggir skv. samningnum mánaðarlega greiðslu til að sinna dýralækna- og bráðaþjónustu á víðkomandi þjónustusvæði.

Dýralæknir sem gerir þjónustusamning skal vera með starfsstöð innan hlutaðeigandi þjónustusvæðis til að tryggja eftir föngum að dýraeigendur fái ávallt dýralækna- og bráðaþjónustu innan hæfilegs tíma. Dýralækninum er heimilt að sinna bráða- og dýralæknaþjónustu á öðrum svæðum en tilgreind eru í samningi þessum. Með sama hætti er öðrum dýralæknum heimilt að bjóða fram þjónustu sína á þjónustusvæðinu.

Um eftirfarandi þjónustusvæði er að ræða:
  • Þjónustusvæði 1:  Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær, Grundafjarðarbær, Helgafellssveit og Stykkishólmsbær.
  • Þjónustusvæði 2:  Dalabyggð, Reykhólahreppur, Strandabyggð, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og Bæjarhreppur.
  • Þjónustusvæði 6:  Bakkafjörður (fyrrum Skeggjastaðahreppur), Vopnafjarðarhreppur, Fljótdalshérað, Fljótdalshreppur, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður og Fjarðabyggð (nema Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður).
  • Þjónustusvæði 8:  Sveitarfélagið Hornafjörður.
  • Þjónustusvæði 9:  Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur.
Nánari upplýsingar um dýralæknaþjónustuna og gerð þjónustusamnings veita Halldór Runólfsson 
og Hafsteinn Jóh. Hannesson í síma 530-4800. Jafnframt er vísað til reglugerðar  nr. 846/2011 um dýralæknaþjónustu í dreifðari byggðum landsins. Umsóknum um þjónustusvæði skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “Dýralæknir – þjónustusvæði X” eða með tölvupósti á mast@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 17. október 2011.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?