Fara í efni

Dýrahald og flugeldar um áramót

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Mörg undanfarin áramót hafa orðið fjölmörg slys og óhöpp vegna ofsahræðslu dýra við flugelda og hávaðann frá þeim. Dýrin skilja ekki að hávaðinn og ljósadýrðin sé ekki upphaf heimsendis og því er eðlilegt að þau verði skelfingu lostin.

Ábyrgð dýraeigenda er mikil gagnvart dýrunum og ber þeim skylda til að passa upp á að dýrin verði ekki sjálfum sér eða öðrum að voða.

Mörg undanfarin áramót hafa orðið fjölmörg slys og óhöpp vegna ofsahræðslu dýra við flugelda og hávaðann frá þeim. Dýrin skilja ekki að hávaðinn og ljósadýrðin sé ekki upphaf heimsendis og því er eðlilegt að þau verði skelfingu lostin. Ábyrgð dýraeigenda er mikil gagnvart dýrunum og ber þeim skylda til að passa upp á að dýrin verði ekki sjálfum sér eða öðrum að voða.

Aldrei er góð vísa of oft kveðin og þar sem líður að áramótunum með tilheyrandi flugeldum er ástæða til að rifja upp helstu leiðbeiningar til dýraeigenda vegna ótta við flugelda. Ótti við hávær hljóð eins og flugelda háir fjölda hunda, katta og ekki síður hrossa. Eðlilegt er að dýrin verði vör um sig í miklum hávaða en sum verða ofsahrædd, titra og skjálfa, verða áhugalaus um mat og leikföng og missa jafnvel þvag. Flest reyna að leita skjóls undir húsgögnum eða inni í skápum en dæmi eru um að hundar hafi nagað sig í gegnum veggi af ótta við hávaða. Mörg dæmi eru um að hross á útigangi hafi algerlega tryllst, brotist gegnum girðingar og flúið til fjalls og ekki fundist fyrr en löngu síðar oft illa útleikin.

Almennar ráðleggingar

Ýmislegt er til ráða til að draga úr óttanum. Dýrunum skal haldið innandyra og best er að útbúa aðstöðu í einhverju herbergi þar sem þau þekkja til. Þar skal draga fyrir glugga og hafa ljósið kveikt og einhverja tónlist í gangi þar sem það getur dregið úr hávaðanum sem berst inn. Þetta á jafnt við um hunda og ketti en kettirnir eru yfirleitt fljótir að finna sér felustað sem hentar þeim. Ráðlegt er að tala rólega við dýrin en ekki vorkenna þeim um of. Dýr sem verða mjög hrædd má ekki skilja eftir einsömul. Hvolpum og kettlingum sem eru að upplifa sín fyrstu áramót þarf einnig að sýna sérstaka aðgát. Hræðsla við hávaða eykst oft eftir því sem dýrin eldast. Hestum sem komnir eru á gjöf í hesthúsum skal gefið vel, hafa ljós kveikt og útvarp í gangi. Eigendur ættu einnig að vitja þeirra á þessum tíma. Útigangshrossum á að gefa vel og halda á kunnuglegum slóðum, þar sem þau fara sér síður að voða ef hræðsla grípur þau.

Notkun róandi lyfja

Það hefur færst í vöxt að gefa hundum róandi lyf á áramótunum og þrettándanum. Þó það sé góð lausn fyrir einhverja hunda er það ekki æskilegt í öllum tilfellum og alls ekki á fyrstu áramótunum sem dýrin upplifa. Verkun róandi lyfja er mismunandi eftir einstaklingum og fer m.a. eftir aldri, líkamlegu ástandi og skapgerð. Ekki hafa öll róandi lyf slævandi áhrif á skynfæri þannig að þrátt fyrir að hundurinn virðist slaka á getur hann upplifað óttann en ekki tjáð hann vegna lyfjanna. Aukaverkanir geta fylgt notkun róandi lyfja og aldrei má skilja dýr eftir ein hafi þeim verið gefin slík lyf. Ávallt skal ráðfæra sig við dýralækni áður en dýrum er gefið róandi lyf.

Við flugeldaótta er sem sagt ýmislegt til ráða og gott er að huga að ráðstöfunum með nokkrum fyrirvara. Dagarnir skömmu fyrir áramót geta gefið vísbendingar um hvernig dýrin munu bregðast við þar sem sumir geta ekki beðið eftir gamlársdegi með að byrja að sprengja. Það allra mikilvægasta er þó að sjá til þess að dýrin séu í öruggu umhverfi og njóti stuðnings eigenda sinna.


Getum við bætt efni síðunnar?