Fara í efni

Dagsektir vegna meðferðar nautgripa

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur lagt dagsektir á kúabú á Norðurlandi vegna meðferðar nautgripa. Við endurtekið eftirlit höfðu kröfur stofnunarinnar um úrbætur vegna bindinga, hreinleika og klaufhirðu kúnna ekki verið virtar.

Samkvæmt reglugerð um beitingu og hámark dagsekta í opinberu eftirliti með velferð dýra taka dagsektir gildi frá og með þeim degi sem þær eru ákvarðaðar og fram að þeim degi sem skyldu er fullnægt að mati Matvælastofnunar. Dagsektir falla niður ef umráðamaður dýra hefur bætt á fullnægjandi hátt úr aðstæðum og aðbúnaði dýra, að mati Matvælastofnunar, innan fimm virkra daga frá ákvörðun stofnunarinnar um dagsektir. 

Við eftirfylgni Matvælastofnunar hafði ekki verið bætt úr innan fimm virkra daga frá ákvörðun stofnunarinnar og leggjast dagsektir að upphæð 30.000 kr. á búið þar til úrbætur hafa verið gerðar. 


Getum við bætt efni síðunnar?