Brúni hundamítillinn greinist
Matvælastofnun barst nýverið tilkynning um að brúni hundamítillinn (Rhipicephalus sanguineus) hafi greinst á hundi á Selfossi. Eigandinn fann mítilinn við burstun á feldi hundsins og fór í kjölfarið með hann á Dýralæknaþjónustu Suðurlands. Þaðan var mítillinn sendur til greiningar á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Tegundagreining leiddi í ljós að um var að ræða brúna hundamítilinn.
Brúni hundamítillinn hefur aðeins greinst í örfá skipti hér á landi og er ekki talinn landlægur á Íslandi. Tekist hefur að uppræta hann í fyrri tilvikum. Matvælastofnun vinnur að því að koma í veg fyrir að hann nái fótfestu hér á landi.
Hvað á að gera ef grunur vaknar um mítil?
Matvælastofnun hvetur hunda- og kattaeigendur til að skoða húð og feld dýra sinna reglulega.
- Hafið samband við dýralækni ef mítill finnst á hundi eða grunur vaknar um mítla. Dýralæknir veitir leiðbeiningar um næstu skref.
- Varðveitið mítla sem finnast og komið þeim til greiningar að Keldum. Almenningur og dýralæknar eru hvattir til að skila öllum mítlum til rannsókna á tilraunastöð Háskólans Íslands í Meinafræði að Keldum sem finnast á fólki eða dýrum.
- Látið upplýsingar fylgja sýninu. Mikilvægt er að sýni fylgi upplýsingar um dagsetningu og fundarstað, hvort mítillinn fannst á manni eða dýri og hvar viðkomandi hefur haldið sig síðustu daga. Einnig þurfa að fylgja upplýsingar um finnanda og ef mítillinn fannst á dýri, þá upplýsingar um dýrið, eiganda þess og hvernig má hafa samband við viðkomandi.
Algengast er á Íslandi að finna fuglamítla (lundamítil) eða skógarmítla, sem geta borist til landsins með farfuglum. Í stöku tilfelli finnst brúni hundamítillinn og getur sníkjudýrafræðingur greint á milli framangreindra tegunda. Ef brúni hundamítillinn greinist þarf að tilkynna það tafarlaust til Matvælastofnunar á mast@mast.is.
Hvers vegna þarf að bregðast við?
Brúni hundamítillinn (Rhipicephalus sanguineus) nærist helst á hundum en getur lagst á önnur spendýr, svo sem nagdýr. Hann er eini mítillinn sem getur farið í gegnum allan lífsferilinn innanhúss og getur því fundist allt árið um kring. Um 5% mítlanna eru til staðar á hundinum, en um 95% eru í umhverfinu. Mítillinn getur lifað í 3-5 mánuði á hverju þroskastigi í upphituðu húsi án þess að fá næringu. Hann getur leynst í sprungum, undir listum og í bælum og lifað í marga mánuði án næringar. Því getur þurft að meðhöndla bæði hundinn og umhverfi hans.
Erlendis er þekkt að brúni hundamítillinn geti borið ýmis smitefni svo sem smitefnin Ehrlichia canis og Babesia canis sem geta valdið sjúkdómum í hundum. Ehrlichia canis hefur aldrei greinst á Íslandi. Babesia canis greindist í fyrsta sinn í innfluttum hundi á einangrunarstöð í lok árs 2023, en hefur ekki greinst síðan. Sjá frétt frá Keldum. Jafnframt er vitað að mítillinn geti borið bakteríuna Rickettsia conorii, sem getur valdið sjúkdómi í fólki og er landlæg í löndum við Miðjarðarhafið (Mediterranean spotted fever), en hefur aldrei greinst hér á landi.
Matvælastofnun mun fyrirskipa að dýr sem mítillinn hefur greinst á verði einangruð frá öðrum dýrum, þangað til viðurkennd lyfjameðhöndlun er hafin og orðin virk. Samhliða meðhöndlun þarf að ryksuga daglega allt á heimilinu í hólf og gólf, sérstaklega staði sem mítlarnir geta leynst á s.s. í sprungum, undir listum, þröskuldum o.s.frv. Bæli hundsins, teppi, fatnað o.s.frv. þarf einnig að þvo. Frysting eða gufuhreinsun getur verið ráð í sumum tilvikum ef ekki er hægt að þvo. Ef mikill fjöldi mítla er í húsnæðinu gæti þurft að leita til meindýraeyðis.
Hvernig má draga úr hættu á að mítillinn berist til landsins?
Brúni hundamítillinn getur borist með fólki og farangri frá löndum þar sem hann er landlægur, sérstaklega eftir snertingu við dýr eða umhverfi þeirra. Eftir slíka snertingu erlendis er mikilvægt að þvo fatnað og búnað og hreinsa skó vandlega áður en komið er heim, eða strax við komu til landsins.
Ítarefni: