Fara í efni

Bólusetning gegn garnaveiki í Héraðshólfi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Eins og fram kom í frétt Matvælastofnunar 5. nóvember s.l. var  garnaveiki staðfest á sauðfjárbúi í Héraðshólfi þann 3. nóvember. Í kjölfarið tók héraðsdýralæknir sýni á öðrum bæ í hólfinu og greindist garnaveiki einnig á honum. Héraðsdýralæknir hélt fund með bændum á svæðinu á miðvikudagskvöld þar sem hún greindi frá því að Matvælastofnun hyggist mæla með að skylt verði að bólusetja allt fé í Héraðshólfi, til að verja það gegn veikinni og hindra útbreiðslu hennar.

Talið er líklegt að garnaveikin sé til staðar á fleiri bæjum í hólfinu. Ekki er mögulegt að ganga fullkomlega úr skugga um það þar sem næmi þeirra blóðprófa sem hægt er að gera á lifandi dýrum er lágt, sem þýðir að þótt niðurstöður þeirra séu neikvæðar er ekki útilokað að garnaveiki sé til staðar. Öruggasta eftirlitið er að bændur fylgist vel með fénu og sendi sýni til rannsóknar á Tilraunastöðina á Keldum, úr kindum sem drepast eða er lógað vegna vanþrifa. 

Bólusetning er góð leið til að koma í veg fyrir nýsmit og hindra útbreiðslu garnaveikinnar. Matvælastofnun mun mæla með því við atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið að Héraðshólfi verði bætt á lista í viðauka I með reglugerð um garnaveiki og varnir gegn henni, nr. 911/2011, þar sem tilgreind eru þau svæði á landinu þar sem skylt er að bólusetja öll ásetningslömb. Bændum er þó heimilt að hefja bólusetningu nú þegar. 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?