Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1183/2017, V. kafla skal umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2017-2018 skilað inn rafrænt á þjónustugátt MAST eigi síðar en 15. mars. Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur.

Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár og hagkvæmari búskaparháttum.

Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að finna í 26. gr. reglugerðarinnar og eru vegna:

a. Nýframkvæmda
b. Endurbóta á eldri byggingum

Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 20% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.


Getum við bætt efni síðunnar?