Fara í efni

Auglýsing á viðbót við rekstrarleyfi Arctic Sea Farm hf. í Arnarfirði FE-1159

Vísað er til rekstrarleyfis Arctic Sea Farm hf. til sjókvíaeldis í Arnarfirði. Tillaga að rekstrarleyfi var auglýst þann 11. október 2021 og gefið út þann 21. mars 2022.

Í vinnslu við útgáfu leyfisins kom umsögn frá Hafrannsóknastofnun er snéri að fjarlægð eldissvæðisins í Trostansfirði. Umrætt eldissvæði er í innan við 5 km fjarlægð frá ósum Sunnudalsár og Norðdalsár og í ljósi umsagnar Hafrannsóknastofnunar taldi Matvælastofnun vafa leika á því hvort villtir laxastofnar með sjálfbæra nýtingu væri að finna í ánum sem vísað er í að framan. Matvælastofnun tók á þeim tíma ákvörðun um að gefa leyfið út en svæðið í Trostansfirði var undanskilið þar sem stofnunin taldi að ekki væri hægt að tryggja að skilyrðum 18.gr. reglugerðar nr. 540/2020 væri mætt.

Arctic Sea Farm hf. kærði þessa niðurstöðu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þann 21. mars 2022. Þann 19. október 2022 úrskurðaði nefndin á þann veg að Matvælastofnun hafi verið óheimilt að hafna umsækjanda um svæðið í Trostansfirði á þeim forsendum sem fjallað er um hér að framan.

Frá þeim tíma sem liðin er síðan úrskurður var kveðinn upp hefur Matvælastofnun fengið ný gögn í málið er snúa m.a. að áhættumati siglinga fyrir svæðið í Trostansfirði ásamt smitvarnaráætlun rekstraraðila sem er sameiginleg með Arnarlaxi ehf. sem einnig er með leyfi til sjókvíaeldis í Arnarfirði.

Að framangreindu auglýsir Matvælastofnun svæðið Trostansfjörð sem verður í kjölfarið bætt við rekstrarleyfi FE-1159 í Arnarfirði. Í tillögu að rekstrarleyfi sem auglýst var á sínum tíma, sjá ítarefni, má finna umrætt svæði og þær afmarkanir sem það er háð.

Athugasemdir við viðbótina skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is merkt 2301408. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 10. nóvember 2025.

Ítarefni

Áður auglýst tillaga að leyfi

Útgáfa leyfis

Áhættumat siglinga, greinargerð Vegagerðarinnar og umsögn Samgöngustofu


Getum við bætt efni síðunnar?