Fara í efni

Áminning um kartöflumyglu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Þar sem kartöflugrös eru nú farin að spretta upp í kartöflugörðum landsmanna vill Matvælastofnun ítreka varúðaorð um að fylgjast vel með kartöflugarðinum í sumar.

Mjög mikilvægt er að almenningur taki strax upp plöntur sem sýna einkenni smits og fargi þeim til að hindra útbreiðslu smits. Veðurfar ræður miklu um það hvort sjúkdómurinn nái sér á strik, hlýtt og rakt veður eykur hættu á útbreiðslu.

  • Einkenni: Svartir blettir á blaðendum og stönglum, að lokum falla grösin alveg.
  • Förgun: Fargið sýktum kartöflum og grösum strax, t.d. í svörtum ruslapokum, ekki setja í lífrænt rusl.

Nánari upplýsingar og hlekki er að finna í frétt Matvælastofnunar frá 19.05.2022

 


Getum við bætt efni síðunnar?