Fara í efni

Alvarlegt atvik í minkabúi í Mosfellsdal - uppfærð frétt

Matvælastofnun lítur mjög alvarlegum augum á atvik sem varð í minkabúi í Mosfellsdal síðastliðna nótt, þar sem stórum hluta dýranna á búinu var sleppt lausum. Ekki hefur verið staðfest með hvaða hætti atvikið bar að og er málið til rannsóknar hjá lögreglu.

Skemmdarverk af slíkum toga eru til þess fallin að valda fjölda dýra mikilli þjáningu, ótta, meiðslum og dauða. Jafnframt getur mikill fjöldi lausra minka haft alvarleg áhrif á villt fuglalíf og lífríkið í nágrenninu. Einnig er alifuglum og mögulega minni gæludýrum í nágrenni hætta búin ef fjöldi lausra minka er á ferð. Eigendur dýra í nágrenni eru hvattir til að tryggja öryggi þeirra með sem bestum hætti. 

Upplýst hefur verið að allt kapp sé lagt á að fanga lausa minka með eins skjótum hætti og hægt er. Matvælastofnun mun fylgja málinu eftir í náinni samvinnu við dýraeigendur, sveitarfélag, lögreglu og aðra viðbragðsaðila á vettvang. Komi í ljós að um brot á lögum um velferð dýra hafi verið að ræða mun stofnunin bregðast við í samræmi við lögbundið hlutverk sitt.

Uppfærðar upplýsingar

Starfsfólk á vegum Mosfellsbæjar vinnur að föngun minka sem hafa sloppið út fyrir öryggisgirðingu. Sérþjálfaðir minkahundar eru notaðir til að finna minkana og reynt eins og kostur er að aflífa dýrin með mannúðlegum hætti. Samkvæmt lögum um velferð dýra skal ávallt skal staðið að veiðum þannig að það valdi dýrunum sem minnstum sársauka og aflífun þeirra taki sem skemmstan tíma. Við veiðar er óheimilt að beita aðferðum sem valda dýri óþarfa limlestingum eða kvölum. Samkvæmt lögunum geta brot varðað sektum eða refsingum.

Veiðimenn eða aðrir með sérþjálfaða minkaveiðihunda sem óska eftir að bjóða fram aðstoð sína við föngun minkana eru beðnir um að mæta ekki á svæðið en geta haft samband við mos@mos.is sem sjá um skipulag við aðgerðir. Fólk er beðið um að hafa ekki lausa hunda á svæðinu.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Mosfellsbæjar

Ítarefni og hlekkir

Hvað áttu að gera ef þú sérð mink í Mosfellsdal?


Getum við bætt efni síðunnar?