Fara í efni

Ákvörðun um skráningu vegna fiskeldis til N-lax ehf. að Auðbrekku við Húsavík

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 hefur Matvælastofnun ákveðið að skrá N-lax ehf. með fiskeldi að Auðbrekku við Húsavík. Um er að ræða landeldi á bleikju, lax og regnbogasilung í kerjum.

N-lax sótti um skráningu vegna 20 tonna hámarkslífmassa í matfiskeldi á bleikju, laxi og regnbogasilungi. Umsókn um skráningu var móttekin þann 13. júlí 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?