Fara í efni

Ákvörðun um skráningu vegna fiskeldis til Bleikju ehf. að Laugum í Landsveit

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 hefur Matvælastofnun ákveðið að skrá Bleikju ehf. með fiskeldi að Laugum í Landsveit. Um er að ræða landeldi á bleikju, lax, regnbogasilung og urriða í kerjum.

Bleikja sótti um skráningu vegna 20 tonna hámarkslífmassa í matfisk- og seiðaeldi á Bleikju (Salvelinus alpinus), lax (Salmo Salar), regnbogasilung (Oncorhynchus mykiss) og urriða (Salmo Trutta). Umsókn um skráningu var móttekin þann 29. október 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni

Staðfesting skráningar Matvælastofnunar til Bleikju ehf.

Starfsleyfi Bleikju ehf.

Ákvörðun um framlengingu starfsleyfis Bleikju ehf.


Getum við bætt efni síðunnar?