Ákvörðun um skráningu vegna fiskeldis Hins Norðlenzka Styrjufjelags ehf. að Vitabraut 7, Reykjanesbæ.
Frétt -
27.11.2025
Í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 um um skráningarskylda aðila í fiskeldi hefur Matvælastofnun ákveðið að skrá Hið Norðlenzka Styrjufjelag ehf. með fiskeldi að Vitabraut 7, Reykjanesbæ. Um er að ræða landeldi á styrju í kerjum.
Hið Norðlenzka Styrjufjelag ehf. sótti um skráningu vegna allt að 20 tonna hámarkslífmassa í matfiskeldi á styrju (Acipenser spp.). Umsókn um skráningu var móttekin þann 2. júlí 2025. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfis- og orkustofnunar.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.
Ítarefni