Fara í efni

Afturköllun rekstrarleyfis Arctic Sea Farm í Skötufirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Arctic Sea Farm fékk úthlutað rekstrarleyfi FE-1113/IS-36121 í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi þann 26. nóvember 2012. Engin starfsemi hefur átt sér stað frá útgáfu leyfisins. Því hefur Matvælastofnun, að undangengnum úrbótafresti og með vísan til 15. gr. laga nr. 71/2008 um fiskeldi, ákveðið að fella úr gildi rekstrarleyfi Arctic Sea Farm í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi frá og með 5. maí 2021.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?