Fara í efni

Afbrigðileg riða á Austurlandi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Við reglulega skimun Matvælastofnunar eftir riðu greindist Nor98 (afbrigðileg riða) nýverið í kind frá bænum Kelduskógum í Berufirði á Austfjörðum.

Síðast greindist  Nor98 í kind sem kom í sláturhús haustið 2013 á bænum Krossi sem einnig er staðsettur í Berufirði. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að Nor98 er ekki smitandi á sama hátt og hefðbundin riða. Nor98 hefur fundist í mörgum löndum en engar vísbendingar eru um að smitefnið berist milli kinda á náttúrulegan hátt. Nor98 hefur m.a. fundist í Nýja-Sjálandi sem er alþjóðlega viðurkennt að vera laust við hefðbundna riðu. Þó engar vísbendingar séu um að Nor98 smitist á náttúrulegan hátt, þ.e. milli kinda í hjörð, er ekki full vissa fyrir því að það geti ekki gerst. Á tilraunastofum hefur tekist að að flytja smitefni frá einni kind í aðra með því að sprauta því í miðtaugakerfið, en ekki hefur ennþá verið sýnt fram á að smit berist á náttúrulegan hátt. Nor98 er talin afbrigðileg riða og það er álit Matvælastofnunar að ekki sé ástæða til að skera niður eins og gert er þegar um hefðbundna riðu er að ræða. Þó verður vöktun vegna riðu á bænum og nágrannabæjum aukin.

Kelduskógar eru í Suðurfjarðahólfi, þar sem hefðbundin riða hefur greinst á sjö bæjum á undanförnum 20 árum frá 1996 til 2005. Í dag er sauðfé á fjórum þessara bæja. Suðurfjarðahólf er því skilgreint sem sýkt svæði og verður það til 2025 ef ekki greinist þar hefðbundin riða á ný. Á sýktum svæðum er bannað að flytja kindur milli hjarða og full ástæða er til að minna bændur á að það bann gildir um alla bæi í hólfinu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?