Fara í efni

Aðilar villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn Matvælastofnunar

Matvælastofnun hefur móttekið ábendingar um aðila sem gekk milli hesthúsa á Eyrarbakka um nýliðna helgi og kynnti sig sem starfsmann stofnunarinnar. Stofnunin vill árétta að engir eftirlitsmenn á hennar vegum voru að störfum á umræddu svæði á þessum tíma. Viðkomandi er ekki á vegum stofnunarinnar og hefur engar heimildir til eftirlits.

Atvik sem þessi eru því miður ekki einsdæmi og hefur það komið fyrir áður að óviðkomandi aðilar gefi sig út fyrir að framkvæma opinbert eftirlit. Af þessu tilefni vill Matvælastofnun beina því til umráðamanna dýra, sem og almennings alls, að sýna aðgát og vera á verði gagnvart háttalagi sem þessu.

Auðkenni eftirlitsmanna Matvælastofnunar

Til að taka af allan vafa gagnvart málum sem þessum er rétt að halda eftirfarandi til haga:

  • Eftirlitsmenn Matvælastofnunar klæðast ávallt vinnufatnaði sem er sýnilega merktur stofnuninni við sín störf.
  • Allir eftirlitsmenn bera sérstök starfsskírteini sem bera merki stofnunarinnar. Þeim ber ávallt að geta framvísað skírteinunum til að sanna á sér deili.

Umráðamenn dýra eru hvattir til að hika ekki við að óska eftir að fá að sjá starfsskírteini leiki minnsti vafi á auðkenni viðkomandi. Verði fólk vart við aðila sem gefa sig út fyrir að vera starfsmenn Matvælastofnunar án tilskilinna heimilda er það vinsamlegast beðið um að hafa tafarlaust samband við stofnunina og, eftir atvikum, tilkynna atvikið til lögreglu.


Getum við bætt efni síðunnar?