Áburðareftirlit 2024
Á árinu 2024 fluttu 29 fyrirtæki inn áburð og jarðvegsbætandi efni alls 317 tegundir. Alls voru flutt inn 55.688 tonn af áburði og jarðvegsbætandi efnum. Sýnataka og vöruskoðun var gerð hjá 5 innflutningsfyrirtækjum og voru alls 12 áburðarsýni af 12 áburðartegund tekin á árinu. Auk þess voru merkingar og umbúðir skoðaðar.
Við efnamælingar kom í ljós að 2 áburðartegundir voru með efnainnihaldi undir eða yfir leyfðum vikmörkum samkvæmt ákvæðum reglugerðar. Ein áburðartegund var með of mikið af köfnunarefni (N), of lítið af brennisteini (SO3) og of hátt kadmíum (Cd) en hin tegundin var með of lítið af fosfór (P2O5). Þessar áburðartegundir hafa verið teknar af skrá Matvælastofnunar. Þeim má ekki dreifa til notenda fyrr en Matvælastofnun er búin að taka sýni af þeim og láta efnagreina og niðurstöður þeirra sýni að áburðurinn stenst kröfur. Allar niðurstöður miðast við uppgefin gildi við skráningu og samkvæmt merkingum á umbúðum. Til viðbótar þá voru fjórar áburðartegundir með of lágt eða hátt selen (Se) miðað við merkingar og þurfa innflutningsfyrirtækin að skoða það m.t.t. markaðssetningar.