VIÐBRÖGÐ VIÐ ALVARLEGUM SMITSJÚKDÓMUM Í DÝRUM OG VIÐBRÖGÐ VIÐ HUGSANLEGA SKAÐLEGU FÓÐRI
Með auknum ferðum fólks milli landa, bættum og auknum samgöngum og sífellt vaxandi flutningi dýra og afurða milli landa, geta smitsjúkdómar komið upp nánast hvar sem er þrátt fyrir margvíslegar varúðarráðstafanir. Alvarlegir smitsjúkdómar valda dýrunum oft miklum þjáningum og geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir velferð þeirra. Þeir geta líka valdið miklu fjárhagslegu tjóni fyrir eigendur dýranna. Brjótist út faraldur getur það haft gífurleg neikvæð áhrif á efnahag þjóðarinnar. Markviss, skipulögð og skjót viðbrögð við grun um alvarlega smitsjúkdóma gera gæfumuninn, eigi að takast að koma í veg fyrir útbreiðslu smitsjúkdóma og tjón af þeirra völdum.
Komið getur fyrir að mistök séu gerð við framleiðslu fóðurs eða það orðið fyrir skemmdum sem valda því að það verði dýrunum skaðlegt. Mikilvægt er að brugðist sé skjótt við ef grunur um slíkt kemur upp og notkun á fóðrinu stöðvuð.
Matvælastofnun hefur gert áætlun um viðbrögð við alvarlegum smitsjúkdómum og hugsanlega skaðlegu fóðri. Í henni er að finna skilgreiningu á boðleiðum, gátlista fyrir þá sem stjórna aðgerðum, ýmis eyðublöð, leiðbeiningar, upplýsingar um nokkra sjúkdóma, almennt yfirlit yfir viðbrögðin o.fl. Áætlunin er í stöðugri endurskoðun og frekari vinnslu. Hluta hennar er að finna hér að neðan.
Boðleiðir
Boðleiðir 01 Viðbrögð við alvarlegum sjúkdómum í dýrum Boðleiðir 02 Viðbrögð við alvarlegum sjúkdómum í fiskum Boðleiðir 03 Viðbrögð við alvarlega gölluðu og mögulega skaðlegu fóðri
Gátlistar
Sýnatökueyðublöð
Faraldsfræðieyðublöð
Faraldsfræði 01 Skráning á upplýsingum vegna gruns eða greiningar á alvarlegum dýrasjúkdómi 1. hlutiFaraldsfræði 02 Skráning á upplýsingum vegna gruns eða greiningar á alvarlegum dýrasjúkdómi 2. hlutiFaraldsfræði 03 Skráning á upplýsingum um bú sem riðuveiki greinist áFaraldsfræði 04 Skráning á upplýsingum um kindur sem greinast með riðuFaraldsfræði 05 Skráning á upplýsingum um bú sem eru tengd riðuveikibúum
Leiðbeiningar
Upplýsingar um sjúkdóma
GKV Gin- og klaufaveiki SP Svínapest HI Hestainflúensa FF Fuglaflensa VS Veiruskita í mink ISA Blóðþorri í laxi
Almenn atriði um viðbrögð við smitsjúkdómum
Almennt 01 - Almenn atriði um viðbrögð við alvarlegum smitsjúkdómum í dýrum - 2007Almennt 02 - Contingency Plan for Foreign Animal Diseases - 2007Almennt 03 - Viðbrögð við alvarlega gölluðu og mögulega skaðlegu fóðri – 2008Almennt 04 - Contingency Plan for Critically Spoiled and Potentially Hazardous Feed – 2007
Eyðublöð fyrir mat á verðgildi
Verðgildi 01 Upplýsingar vegna mats á verðgildi fiska vegna förgunarVerðgildi 02 Upplýsingar vegna mats á verðgildi búfjár vegna förgunar