
|
Innra eftirlit
Leiðbeiningar til matvælafyrirtækja um þær kröfur sem gerðar eru til innra eftirlits. Fjallað er um tilgang, ábyrgð, hættur, góða starfshætti, skilgreiningar, löggjöf, flokkun fyrirtækja og leiðbeiningar faggreina.
|
| |
|

|
Áhrif nýrrar matvælalöggjöf
Ný matvælalöggjöf um hollustuhætti og eftirlit gekk í gildi í Evrópu 2006 og verður innleidd í áföngum á Íslandi á árunum 2010 og 2011. Hér er að finna upplýsingar um áhrif nýrrar matvælalöggjafar á:
|
| |
|

|
Öskufall
Leiðbeiningar um viðbúnað fyrir, eftir og meðan á öskufalli stendur. Í bæklingnum er að finna leiðbeiningar sem fylgja skal ef viðvörun um öskufall er gefin út, tilmæli um hvað gera skal meðan á öskufalli stendur og hvaða aðferðir eru árangursríkastar við hreinsun ösku að loknu gosi.
|
| |
|

|
Með allt á hreinu
Með allt á hreinu er endurútgefinn bæklingur um hollustuhætti við meðferð matvæla. Bæklingurinn er ætlaður starfsfólki sem meðhöndlar matvæli á einn eða annan hátt. Farið er yfir almennar umgengnisreglur, vinnufatnað, vinnuhlé og salernisferðir, örverur og hitastig, með það að markmiði að bæta hreinlæti og stuðla að auknu matvælaöryggi. Hér má finna bæklinginn á íslensku, ensku og pólsku: - á íslensku - á ensku - á pólsku
|
| |
|

|
Skelfiskur á matseðlinum
Bæklingurinn er gefinn út í samstarfi við Hafrannsóknarstofnun og fjallar um markaðsetningu á skelfiski, tegundir skelfiskeitrana og viðbrögð við skelfiskeitrun, notkun auðkennismerkja og eftirlit á skelfisksvæðum.
Bæklingurinn er einkum ætlaður þeim sem selja og matreiða skelfisk.
|
| |
|

|
Matvælastofnun
Í bæklingnum er fjallað um starfssemi Matvælastofnunar: Matvælaöryggi og neytendamál, heilbrigði og velferð dýra og stjórnsýslu og löggjöf.
Hlutverk, helstu verkefni og framtíðarsýn koma fram, ásamt heimilisföngum, vefslóð, síma og bréfsíma.
|
| |
|
 |
Koffín
Í bæklingnum er hámarkneysla barna og unglinga miðað við líkamsþyngd skilgreind, ásamt ráðlegum dagskammti fyrir fullorðna og fyrir barnshafandi konur. Fjallað er um hvaðan koffín kemur, í hvaða matvælum efnið er að finna og gefin dæmi um magn koffíns í hefðbundnum koffín-ríkum neysluvörum. Áhrif koffíns á líkamann eru tekin fyrir og farið sérstaklega í áhrif efnisins á börn, unglinga og barnshafandi konur. Að lokum kemur bæklingurinn inn á orkudrykki, koffín magn þeirra og áhrif neyslu þeirra með áfengum drykkjum.
|
| |
|
 |
Smitvarnir
Í þessum bæklingi er að finna upplýsingar sem stílaðar eru á erlenda ferðamenn á leið til landsins og hefur bæklingurinn það að markmiði að vernda íslenska fánu gegn utanaðkomandi smitsjúkdómum.
Bæklingurinn inniheldur leiðbeiningar um innflutning á hesta- og stangveiðibúnaði, ásamt upplýsingum um innflutning á hráum kjötvörum.
|
| |
|
 |
Sælgæti og smáhlutir
Árlega eru mörg börn hætt komin hér á landi vegna aðskotahlutar í hálsi. Flest þessara barna eru yngri en 8 ára. Oftast stendur matur, sælgæti eða smáhlutir í hálsi barna.
Bæklingur þessi vekur athygli á þeirri hættu sem steðjar að börnum vegna sælgætis og smáhluta sem festast geta í hálsi og hvernig bregðast eigi við þegar losa þarf aðskotahlut úr öndunarvegi þegar ungbarn er annars vegar og barn eldri en eins árs hins vegar.
|
| |
|
 |
Umbúðir matvæla
Bæklingur um umbúðir matvæla. Tilgangurinn með útgáfu bæklingsins er fyrst og fremst að fræða neytendur um rétta notkun umbúða, auk þess að vekja framleiðendur, innflytjendur og pökkunaraðila til umhugsunar.
Umbúðir matvæla er einn flokkur efna og hluta sem ætlað er að snerta matvæli, en efni og hlutir eru hvers konar umbúðir, ílát, tækja-búnaður, borðbúnaður og öll efni sem slíkir hlutir eru samsettir úr. |
| |
|
 |
Góð ráð við grillið
Tilgangurinn með útgáfu bæklingsins er fyrst og fremst að koma með góð ráð fyrir neytendur sem finnst gaman að grilla. Í bæklingnum eru ýmsar ábendingar um hvernig er best er að undirbúa og meðhöndla hráefni og framreiða matinn til að koma m.a. í veg fyrir hættu á matarsýkingum. |
| |
|

|
Fæðubótarefni
Í bæklingnum er að finna leiðbeiningar um hvernig skuli bera sig að við markaðssetningu á fæðubótarefnum og þar af leiðandi tryggja öruggari vörur fyrir neytendur.
Upplýsingar og staðreyndir. Nýjar reglur um fæðubótarefni.
|
| |
|
|

|
MAST einblöðungar
|
| |
|

|
Eldri einblöðungar frá matvælasviði Umhverfisstofnunar
|
|
|

|
Merkingar matvæla
Spjald með upplýsingum um það sem á að koma fram á umbúðum matvæla.
Nánari upplýsingar um merkingar matvæla er að finna hér. |
| |
|
 |
Matur og meðganga
Í september 2008 kom út nýr fræðslubæklingur um mataræði á meðgöngu sem Lýðheilsustöð, Miðstöð mæðraverndar og Matvælastofnun standa að í sameiningu. Nálgast má bæklinginn í pdf-formi á heimasíðum allra þessa þriggja stofnana eða panta hann hjá Miðstöð mæðraverndar (mm@mm.hg.is). |
| |
|

|
Varnir gegn matarsýkingum og matareitrunumBæklingur um bakteríur sem valda matarsýkingum og matareitrunum: Uppruni matarsýkinga, helstu sýklar, hreinlæti, hitameðferð, kæling og viðbrögð.
|
| |
|

|
Litlar vatnsveitur
Bæklingurinn “Litlar vatnsveitur” er ætlaður öllum þeim sem eiga litlar vatnsveitur s.s. bændur, sumarbústaðareigendur, félagasamtök og minni sveitarfélög. Bæklingurinn var liður í “Átaki um hreint neysluvatn”.
Í bæklingnum er sýnt hvernig á að bera sig að við val, hönnun og gerð lítilla vatnsveitna. Í honum er einnig gátlisti fyrir alla þá sem nú þegar eru með vatnsveitu Að lokum er bent á þá aðila sem þekkja til þessara mála og geta gefið frekari upplýsingar. |
| |
|

|
E - númer
Eldri bæklingur sem í er að finna lista yfir númer aukefna í matvælum.
Nánari upplýsingar um aukefni og E - númer er að finna hér. |