Nokkuð er um að hunda- og kattaeigendur flytji sér dýrin sín til útlanda vegna búferlaflutninga eða til að selja. Við slíkan útflutning er mikilvægt að kanna með góðum fyrirvara hvers konar heilbrigðiskröfur eru gerðar í viðkomandi landi. Upplýsingar er m.a. hægt að finna á vefsíðum dýralæknayfirvalda - sjá tenglasafn.
ESB / EES
Samræmdar reglur eru nú um innflutningsreglur til allra aðildarríka ESB, Noregs og Sviss.
Frá og með 1.1.2012 urðu þær breytingar á útflutningsreglum gæludýra (hunda og katta) til Noregs, Svíþjóðar, Bretland og Möltu að enn sem fyrr er krafist bólusetningar gegn hundaæði en biðtíminn styttur í 21 dag og krafa um blóðprufu felld niður.
Bólusetja skal gegn hundaæði 21 degi fyrir brottför, engin krafa um blóðprufu.
Ekki er heimilt að bólusetja dýr gegn hundaæði á Íslandi. Þegar um er að ræða útflutning hunda og katta til landa sem krefjast hundaæðisbólusetningar, getur yfirdýralæknir veitt sérstaka undanþágu fyrir viðkomandi dýralækni.
Að lokinni bólusetningu skal eigandi/forráðamaður dýrsins undirrita yfirlýsingu og hún skal geymd hjá viðkomandi dýralækni í a.m.k. tvö ár (ath! skrá skal lotunúmer bóluefnisins á ýfirlýsinguna).
Ath! Að gefnu tilefni er bent á að auk umsóknar til yfirdýralæknis, er nauðsynlegt að sækja um undanþágu til Lyfjastofnunar vegna kaupa á Rabisin, vet. bóluefni. Þau umsóknareyðublöð fást hjá Lyfjastofnun, s. 520 2100.
- Auðkenni
Dýrin skulu vera örmerkt eða eyrnamerkt.
- Hundaæði – bólusetning
Dýrin skulu bólusett gegn hundaæði (rabies).
Um öll lönd gildir að 3 vikur (21 dagur) þurfa að líða frá bólusetningu gegn hundaæði þar til flytja má dýrið út. (Breytt 1.1.2012)
Ath! Sum lönd leyfa innflutning á hvolpum/kettlingum yngri en þriggja (3) mánaða án bólusetningar gegn hundaæði. Eigendur eru hvattir til að leita upplýsinga hjá viðkomandi löndum varðandi þetta.
- Sníkjudýrameðhöndlun
Dýrin skulu meðhöndluð gegn bandormum (Echinococcus) innan 10 daga fyrir brottför. Sum lönd krefjast einnig meðhöndlunar gegn farmaurum/stórmaurum (ticks).
- Sérstök vottorð (eyðublöð)
Nauðsynlegt er að notuð séu sérstök vottorð fyrir hvert innflutningsland, sem eru útgefin af ESB.
- Undirskrift opinbers dýralæknis
Auk dýralæknisins sem meðhöndlar dýrið og fyllir út vottorðið skal opinber dýralæknir (t.d. héraðsdýralæknir viðkomandi umdæmis) einnig skrifa undir vottorðið.
- Gæludýrapassi
Ekki er þörf á svokölluðum gæludýrapassa þegar flytja á hund eða kött frá Íslandi til landa innan ESB/EES en hans er krafist ef til stendur að ferðast með dýrið á milli Evrópusambandslanda. Í flestum tilfellum eru slíkir passar útgefnir hjá dýralæknum í viðkomandi löndum og mikilvægt er að hafa meðferðis gögn um hundaæðisbólusetningu.
Eigendur dýra sem flytja skal til landa innan ESB/EES eru hvattir til að hafa samband við sinn dýralækni í tæka tíð til að skipuleggja bólusetningu og meðhöndlun.
Nýja-Sjáland
Hérna er tengill á vef landbúnaðarráðuneytis þeirra Nýsjálendinga og þar er að finna ítarlegar upplýsingar um innflutningsskilyrði hunda og katta frá Íslandi, svo og umsóknareyðublöð.
Bandaríkin
Yfirleitt er einingis gerð krafa um almennt dýralæknisvottorð þar sem fram koma upplýsingar um dýrið, auðkenni auk ormahreinsunar. Sum fylki gera þó kröfu um hundaæðisbólusetningu.
Japan
Japanir fara fram á að sótt sé um innflutningsleyfi (-númer) 40 dögum fyrir innflutning. Þar sem Ísland er hundaæðisfrítt þarf ekki að bólusetja hunda og ketti gegn hundaæði en gerð er krafa um heilbrigðisvottorð. Upplýsingar um innflutningskröfur til Japan.