Matvælastofnun
VINNSLA Á KJÖTI OG KJÖTVÖRUM
Leyfisveitingar fyrir sláturhús

Hver sá sem vill byggja sláturhús til að slátra sláturdýrum í þeim tilgangi að selja afurðirnar á opinberum markaði, skal sækja um leyfi til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og senda teikningar og aðrar nauðsynlegar upplýsingar með. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti leitar umsagnar Matvælastofnunar varðandi umsóknina. Að fengnu samþykki Matvælastofnunar löggildir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið sláturhúsið.


Matvælastofnun veitir rekstraraðilum sláturhúsa sláturleyfi. Skilyrði fyrir sláturleyfisveitingu eru m.a. að sláturleyfishafi eigi löggilt sláturhús eða hafi samning um notkun á löggiltu sláturhúsi og að hann starfræki innra eftirlit samkvæmt reglugerð nr. 40/1999, um innra eftirlit í sláturhúsum og kjötpökkunarstöðvum.

    Útflutningsleyfi til Evrópu - velja þarf viðeigandi Section í töflunni
 
    Útflutningsleyfi til Japans og Bandaríkjanna - í vinnslu

    Lög og reglur um sláturhús og kjötskoðun

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað