Innra eftirlit er
eftirlit á vegum framleiðanda eða dreifanda í þeim tilgangi að tryggja
gæði, öryggi og hollustu matvæla og að vörurnar uppfylli að öðru leyti
þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. Innra eftirlit er fyrirbyggjandi
aðferð.
Á síðunni má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um innra
eftirlit í matvælafyrirtækjum bæði fyrir lærða og leika. Athugasemdir
og ábendingar um innihald síðunnar eru vel þegnar.
Laga- og reglugerðarákvæði um innra eftirlit
Lög um matvæli (23.gr.)
Matvælareglugerðin (4.gr.)
Leiðbeiningar um innleiðingu innra eftirlits
Út frá fyrirliggjandi
upplýsingum í starfsleyfisumsókn og samkvæmt viðmiðunarlista (sjá að
neðan) Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga fyrir flokkun fyrirtækja
m.t.t. innra eftirlits ræðst hvaða lágmarkskröfur eru gerðar til innra
eftirlits viðkomandi fyrirtækis. Ef aðilar telja einstök fyrirtæki
ranglega flokkuð eða óvissa er um flokkun, m.t.t. innra eftirlits skal
ábendingum um það komið á framfæri við Matvælastofnun. Matvælastofnun
fjallar um ábendingarnar í samstarfi við viðkomandi
heilbrigðiseftirlitssvæði. Matvælastofnun sér um uppfærslu á
viðmiðunarlistanum og kynningu á breyttri flokkun.
Nokkrar staðreyndir:
Matvælafyrirtækin bera
sjálf ábyrgðina á sinni framleiðslu. Mörg dæmi eru til um að fyrirtæki
komi mjög illa fjárhagslega út úr matarsýkingum/eitrunum. Sumir
neytendur ná sér aldrei fullkomlega eftir slík veikindi.
Lög um
matvæli og matvælareglugerð skylda matvælafyrirtæki til að starfrækja
innra eftirlit til að tryggja gæði, öryggi og hollustu matvæla. Ákvæði
í matvælareglugerð eru sveigjanleg því matvælafyrirtæki eru mjög
margbreytileg. Innra eftirlitskerfi taka alltaf mið af hverju
fyrirtæki. Fyrirtækin gera áætlun um sitt innra eftirlit byggt á sinni
starfsemi, þekkingu og metnaði og kröfum reglugerðarinnar.
Heilbrigðiseftirlit
sveitarfélaga metur hvort kerfið er nægilegt, fyrst og fremst byggt á
því, hvort það telur kerfið taka nægilega á þeim þáttum sem hafa áhrif
á öryggi matvælanna.
Gleymum því ekki að þetta er gert fyrir neytendur
ÖRUGG MATVÆLI - ALLRA HAGUR
Ítarefni:
Áhættuþættir í stóreldhúsum
Fræðsluefni um verslanakæla
Eftirlitshandbækur og áhættumat matvælafyrirtækja