Matvælastofnun
FLOKKAR MATVÆLA - NÝFÆÐI

Nýfæði eru matvæli eða innihaldsefni matvæla sem framleidd eru með nýjum eða nýstárlegum vinnsluaðferðum og matvæli sem ekki eru hefðbundin neysluvara í Evrópu.

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á framleiðslu matvæla. Nú eru til aðferðir sem menn hefðu ekki getað látið sig dreyma um í upphafi 20. aldar, t.d. að erfðabreyta plöntum og dýrum, búa til hitaeiningasnauða fitu með því að hengja fitusýrur á sykrusameindir, nota háþrýstitækni og geislun til að rotverja matvæli og svo mætti lengi telja. Einnig flyst mikið af framandi matvælum til Vesturlanda frá öðrum heimshlutum.

Nýfæði (Novel foods) er samheiti yfir matvæli og innihaldsefni matvæla sem ekki hafa áður verið á boðstólum á Vesturlöndum.  Nýfæði getur verið matvæli sem framleidd eru með nýjum aðferðum, t.d. erfðabreytt matvæli og matvæli sem Vesturlandabúar hafa ekki áður neytt,  svo sem telauf  eða ávextir sem eru okkur framandi en eru vel þekktir í öðrum heimshlutum. Lengi vel giltu mismunandi reglur um slík matvæli í Evrópu en árið 1997 voru þær samræmdar með reglugerð  Evrópusambandsins um nýfæði.
 
Samkvæmt reglugerðinni þarf að sækja um leyfi til fyrstu markaðssetningar og dreifingar á nýfæði. Opinberar matvælastofnanir og/eða heilbrigðisyfirvöld meta umsóknina m.t.t. hvort nýfæðið sé samsvarandi einhverju sem þegar er á markaði. Ef svo er ekki  er kannað hvort það  kunni að vera skaðleg heilsu manna. Segja má að nýfæði sé aðeins stig í lengra ferli  matvæla og innihaldsefna því þegar  búið er að veita leyfi fyrir markaðssetningu á nýfæði eru viðkomandi matvæli ekki lengur nýfæði, þ.e. a. s. ekki þarf að sækja tvisvar um leyfi til markaðssetningar á sömu vöru. Í aldanna rás hefur reynslan skorið úr um hvaða matvæli er óhætt að borða og hver ekki, en með breyttum viðhorfum til þáttar mataræðis í heilsufari manna þykir eðlilegt að skoða ný og nýstárleg matvæli áður en þau koma á markað í fyrsta sinn. Nýfæðið hefur því sérstöðu meðal matvæla  því aldrei áður hafa ný matvæli verið metin á þennan hátt áður en þau eru sett á markað.
 
Margar umsóknir um nýfæði liggja nú fyrir hjá Evrópusambandinu, en umsóknarferlið tekur langan tíma þar sem sérfræðingar í öllum aðildarríkjum fá að skoða umsóknirnar og segja álit sitt á þeim. Nokkur dæmi um matvæli og innihaldsefni matvæla sem hafa verið markaðssett sem nýfæði í Evrópuríkjum eru Lactobacillus GG, guarana, grænt te, ostar sem framleiddir eru með ensímum úr erfðabreyttum örverum og tómatsósa úr erfðabreyttum tómötum.  Eina dæmið um umsókn sem hefur verið hafnað hjá Evrópusambandinu er notkun sætuefnisins Stevia í matvæli.
 

Erfðabreytt matvæli

Blöndun erfðaefnis með hefðbundnum kynbótum hefur löngum tíðkast í landbúnaði og húsdýrarækt og þar með matvælaframleiðslu. Slík erfðablöndun þykir sjálfsögð og eðlileg og matvæli sem framleidd eru úr kynbættum afurðum teljast ekki erfðabreytt. En blöndun erfðaefnis með aðferðum hefðbundinna kynbóta getur aðeins átt sér stað  innan tegunda. Með erfðatækni er hins vegar hægt að færa erfðaefni milli óskyldra tegunda og erfðabreytingarnar eru markvissar, þ.e. hægt er að flytja inn í lífveru aðeins þann eiginleika sem sóst er eftir.    
 
Erfðabreytt matvæli sem koma á markað í fyrsta sinn eru nýfæði og sækja þarf um leyfi til markaðssetninga þeim eins og öðru nýfæði. Samkvæmt reglugerð Evrópusambandsins um nýfæði skal meta hvort matvælin geta verið skaðleg fyrir neytendur áður en markaðssetning er leyfð.

Á Íslandi gilda engar reglur um nýfæði.

Fræðslupistill um nýfæði

Novel foods hjá Evrópusambandinu

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað