Matareitranir og matarsýkingar af völdum örvera hafa, ásamt eitrunum vegna aðskotaefna í matvælum, samheitið matarsjúkdómar. Algengustu orsakir matarsjúkdóma eru rangt hitastig og skortur á hreinlæti, sem hafa orðið til þess að örverur hafa náð sér á strik í matvælum. Talið er að til heilbrigðisyfirvalda fréttist aðeins um lítinn hluta matarsjúkdóma og er oft talað um að það sé eins og toppurinn á ísjaka. Tilkynna á heilbrigðiseftirliti ef grunur er á matareitrun eða matarsýkingu í heimahúsi eða annarsstaðar. Undir þessum flokki er að finna eftirfarandi efni:
- Bacillus cereus: Hvað? Hvar? Vaxtarskilyrði, eitrun og einkenni, ráðleggingar
- Campylobacter: Hvað? Hvar? Einkenni, ráðleggingar
- Clostridium botulinum: Hvað? Hvar? Vaxtarskilyrði, einkenni, ráðleggingar
- Clostridium perfringens: Hvað? Hvar? Vaxtarskilyrði, orsök, einkenni, fyrirbyggjandi
- Escherichia coli: Hvað? Hvar? Einkenni, hópsýkingar, ráðleggingar
- Listeria monocytogenes: Hvað? Hvar? Vaxtarskilyrði, einkenni, ráðleggingar
- Salmonella: Almennar upplýsingar, eftirlit, verklagsreglur
- Staphylococcus aureus: Hvað? Hvar? Vaxtarskilyrði, einkenni, fyrirbyggjandi
- Sjúkdómstilfelli og ítarefni: Um sjúkdómstilfelli, fræðsla, tenglar
- Þörungaeitur í skelfiski: Eftirlit, einkenni, tínsla