Skýrslur eftirlitsverkefna Matvælastofnunnar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Í eftirlitsverkefnum matvælasviðs Umhverfisstofnunar, sem nú heyrir undir Matvælastofnun, og heilbrigðiseftirlits sveitafélaga er framkvæmd könnun um allt land þar sem sömu þættir eru skoðaðir og niðurstöður teknar saman fyrir allt landið hjá Matvælastofnun. Eftirlitsverkefni ættu því að gefa mynd af ástandi þess sem verið er að skoða á tilteknu tímabili og samantektir úr þeim má nota til að bera saman niðurstöður úr sams konar eftirlitsverkefnum milli ára.
Niðurstöður allra eftirlitsverkefna matvælasviðs Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitafélaga frá árinu 2002 eru birt hér. Á þessum vef er einnig hægt að fræðast um matreiðslu, vinnslu og meðhöndlun á matvælum. Upplýsingar er einnig að finna um öryggi matvæla t.d um hitun og kælingu á matvælum og um helstu orsakir matarsýkinga.
2012
|
 |
Meðhöndlun einnota og margnota umbúða í matvælafyrirtækjum, janúar 2012 |
|
 |
Innihaldslýsingar matvæla og uppskriftir þeirra, janúar 2012 |
2011
| |
 |
Innihaldsefni, merkingar og markaðssetning fæðubótarefna, september 2010-mars 2011 |
2010
| |
 |
Ís úr vél, júní-ágúst 2010 |
2009
| |
 |
Könnun á salmonellu í svínakjöti, júní 2009
|
2008
| |

|
Örveruástand í blaðgrænmeti, september-nóvember 2008 |
| |
 |
Könnun á örveruástandi í þorramat, desember 2007-febrúar 2008
|
| |
 |
Mælingar á salti, nítríti og nítrati í kjöti, desember 2007-febrúar 2008 |
2007
| |

|
Könnun á salmonellu og aflatoxíni í bökunarkorni, fræjum/fræblöndum og múslí 2007
|
| |

|
Könnun á kælihitastigi og uppröðun í kæla 2007 |
| |

|
Könnun á umgengni og hreinlæti í íslenskum fiskvinnslum
|
| |

|
Hollustuhættir í sjoppum/skyndibitastöðum sem selja steikta borgara og örveruástand steiktra borgara 2007 |
| |

|
Matvæli á boðstólum í líkamsræktarstöðvum 2007 |
| |

|
Örveruástand krydds 2007 |
2006
| |

|
Könnun á flutningi matvæla ágúst-október 2006
|
| |

|
Örveruástand fiskafurða september-október 2006 |
| |

|
Merkingar á tilbúnum réttum september-desember 2006 |
| |

|
Örveruástand kjúklingakjöts júlí-september 2006 |
| |

|
Sjálfsafgreiðsla í smásöluverslunum 2006 Könnun á hreinlæti í og við sjálfsafgreiðslustaði/-standa sem og búnaði |
| |

|
Úttekt á innihaldsefnum, merkingu og markaðssetningu fæðubótarefna mars-apríl 2006 |
| |
 |
Örveruástand á unnum kjötvörum 2006 |
| |

|
Örverufræðilegt ástand osta 2006 |
2002-2005
| |

|
Eftirlitsverkefni Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga 2005 |
| |

|
Eftirlitsverkefni Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga 2004 |
| |

|
Eftirlitsverkefni Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga 2003 |
| |

|
Eftirlitsverkefni Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga 2002 |
Niðurstöður eftirlits með varnarefnaleifum í matvælum
Fram til ársins 2002 einskorðaðist eftirlit með varnarefnaleifum í matvælum við ávexti og grænmeti, en árið 2002 voru einnig tekin sýni af ávaxtasafa og barnamat og árið 2003 voru einnig tekin sýni af korni og kornvörum
Áætlun um sýnatöku er gerð árlega. Við gerð hennar er þess gætt að fjöldi sýna endurspegli neyslu. Stuðst er við tölur um framleiðslu og innflutning. Einnig er tekið mið af því í hvaða matvælum aðrar þjóðir finna helst varnarefnaleifar. Á hverju ári leggur Evrópusambandið sérstaka áherslu á greiningu varnarefnaleifa í tilteknum vörum. Við gerð sýnatökuáætlana er þetta einnig haft til hliðsjónar. Þeim fjölda varnarefna sem leitað er að (skimað fyrir) hefur fjölgað nokkuð frá því mælingar hófust og í dag er skimað fyrir 40 efnum. Þau hafa verið valin með tilliti til reynslu erlendis frá, hvaða efni innlendir framleiðendur nota og hvaða áherslur koma frá Evrópusambandinu. Valið er endurskoðað reglulega og stefnt er að því að fjölga þeim varnarefnum sem skimað er fyrir á næstu árum.