Lífrænn búskapur byggist á lífrænni ræktun og tekur til allra búgreina. Farið er eftir alþjóðlegum reglum. Búskaparhættirnir eru gæðavottaðir og afurðirnar merktar sérstökum vörumerkjum.
Vistvænn búskapur er frábrugðinn lífrænum búskap í grundvallaratriðum. Þannig er vistvænn búskapur í raun hefðbundinn, gæðastýrður landbúnaður því að þar eru notuð hefðbundin eiturefni lyf og tilbúinn áburður.
Lífefld (biodynamic) ræktun er lífræn ræktun sem stunduð er í samræmi við leiðbeiningar Rudolfs Steiners (1861 - 1925) að viðbættum síðari rannsóknum og reynslu.
Allt eftirlit og öll vottun lífrænna búskaparhátta hérlendis er á vegum Vottunarstofunnar TÚN sem hefur fullgilda innlenda og alþjóðlega viðurkenningu. Þegar TÚN var stofnað 1994 hófst starfsemin með náinni samvinnu við Soil Association í Bretlandi og reglur stofunnar um lífræna framleiðslu hafa mótast mjög af reglum S A. Eftir að hafa fengið upplýsingar og ráðgjöf hjá Bændasamtökum Íslands er bændum sem hyggjast fara út í lífrænan búskap bent á að hafa samband við TÚN sem m.a. gefur upplýsingar um kostnað og setur upp aðlögunaráætlun með bóndanum ef hann ákveður að semja við stofuna um eftirlits- og vottunarþjónustu. Enginn má markaðssetja afurðir sem lífrænar nema búskapurinn hafi hlotið lögmæta vottun.
Ítarefni:
Lög og reglur - Lífræn framleiðsla