Fara á forsíðu
LEIÐBEININGAR - FÓÐURVERKSMIÐJUR
Fyrirtæki eða einstaklingar sem hyggjast framleiða fóður skulu óska eftir skráningu hjá Matvælastofnun á sérstöku eyðublaði, áður en framleiðsla hefst.

Fóður eru afurðir úr jurta- eða dýraríkinu eins og þær koma frá náttúrunni, nýjar eða rotvarðar, fullunnar eða unnar að hluta og lífræn eða ólífræn efni, notuð ein sér eða í blöndum, með eða án aukefna sem gefin eru dýrum.  Í stuttu máli er fóður allt sem fer upp í munn á dýrum, nema lyf.

Sækja þarf um skráningu hverrar fóðurtegundar til Matvælastofnunar á sérstöku eyðublaði. Með umsókninni þar að fylgja innihaldslýsing fyrir vöruna þar sem fram kemur hráefnainnihald í prósentum og innihald aukefna ásamt efnagreiningu á fóðrinu sé það ætlað dýrum til manneldis.  Sömu upplýsingar þurfa að fylgja fóðri fyrir dýr sem ekki eru ætluð til manneldis (gæludýr, loðdýr) nema hráefnainnihald þarf ekki að vera í prósentum heldur raðað eftir minnkandi magni efnanna.

Þegar umsókn um skráningu fyrirtækis hefur borist tekur Matvælastofnun út aðstöðu og áætlun um innra gæðaeftirlit fyrirtækisins.  Fullnægi fyrirtækið kröfum sem gerðar eru í reglugerðum er fyrirtækið skráð og fær sérstakt skráningarnúmer.