Fara á forsíðu
STARFSLEYFI - VINNSLA Á FISK OG FISKAFURÐUM

Starfsleyfi - fiskvinnslur:
  





 

Hlutverk MAST


Matvælastofnun veitir fiskvinnslufyrirtækjum og vinnsluskipum vinnsluleyfi. Að auki veitir stofnunin starfsleyfi til annarra fiskiskipa. Vinnsluleyfi eru veitt að undangenginni upphafsskoðun og þurfa umsækjendur að uppfylla kröfur um hreinlæti, hönnun, búnað og innra eftirlit auk þess sem umsækjendur þurfa að hafa gert samning við faggilta skoðunarstofu um reglubundið eftirlit. Útgerðir skipa undir 15 Bt eru þó undanskildar kröfunni um samning við skoðunarstofu. Veiting vinnsluleyfa er ákveðið ferli sem lýst er sérstaklega hér á síðunni.

Komi til niðurfellingar eða sviptingar leyfa er það einnig á hendi Matvælastofnunar. 

 

Efst á síðu

 

Tegundir leyfa


Í fiskvinnslu og útgerð er gerður greinarmunur á vinnsluleyfum annars vegar og starfsleyfum hins vegar. Leyfi til vinnslu afurða úr fiski kallast vinnsluleyfi en leyfi sem veitt eru veiðiskipum öðrum en vinnsluskipum eru starfsleyfi. Þá er fiskmörkuðum, aðgerðarþjónustum, kæli-  og frystigeymslum veitt  starfsleyfi. Aðilar sem annast meðferð, flutning, geymslu, vinnslu og dreifingu fiskafurða að undanskilinni smásölu eru leyfisskyldir hjá Matvælastofnun, en smásölufyrirtæki (fiskbúðir og fiskvinnslur í tengslum við viðkomandi fiskbúðir), eru undir eftirliti Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga sem jafnframt veitir þeim starfsleyfi.

Efst á síðu

 

Samþykkisnúmerakerfið


Starfs- og vinnsluleyfishafar í fiskvinnslu og útgerð (þ.e. landvinnslur, vinnsluskip og frystiskip) fá úthlutað númerum sem kölluð eru samþykkisnúmer (e. approval numbers). Notkun samþykkisnúmera byggir á kröfum Evrópusambandsins en fiskafurðir eru í frjálsu flæði innan EES. Samþykkisnúmerin eru fyrst og fremst notuð til að hægt sé að rekja afurðir til framleiðenda þeirra.

Á pakkningum matvæla sem unnin eru úr dýrum skal vera auðkennismerki, sem er sporöskjulagað og inniheldur samþykkisnúmerið auk þess sem IS skal standa ofan við og EFTA neðan við númerið.




Samþykkisnúmerin eru 4ra stafa númer sem byrjar á einum bókstaf og síðan eru 3 tölustafir (t.d. A999). Mesta breytingin frá eldra númerakerfinu (IS-númerin) er sú að samþykkisnúmerið nær yfir allar starfsgreinar sem viðkomandi matvælaframleiðandi hefur leyfi fyrir í sömu starfsstöðinni. Óski hann eftir að bæta við vinnslugrein, sækir hann um það til Matvælastofnunar og að fengnu samþykki hennar gildir sama samþykkisnúmer fyrir þá grein einnig.

Efst á síðu

 

Leyfishafar


Matvælastofnun heldur skrá yfir alla leyfishafa í fiskvinnslu og útgerð. Tengill er hér að neðan inn á opinbera síðu stofnunarinnar þar sem hægt er að sjá flokkun vinnsluleyfa eftir greinum Þeir þættir sem varða fiskvinnslu eru:
Þáttur 0
Þáttur VII
Þáttur VIII
Þessi síða verður uppfærð reglulega.

 

Efst á síðu


Framleiðsla fyrir Rússlandsmarkað


Rússneska matvælastofnunin Rosselkhoznadzor ákvað á árinu 2006 að heimila einungis innflutning á matvælum til Rússlands sem framleidd hafa verið af fyrirtækjum þ.m.t. skipum, sem eftirlitsmenn þeirra hefðu tekið út og viðurkennt. Matvælastofnun hafur annast milligöngu um þessar skoðanir hér á landi og verið rússnesku eftirlitsmönnunum til aðstoðar. Þessi samvinna hefur nú þróast þannig að eftirlitsmenn Matvælastofnunar annast nú úttektir bæði á skipum og landvinnslufyrirtækjum fyrir hönd rússneskra yfirvalda og mælir með viðurkenningu þeirra að uppfylltum skilyrðum. Rússnesk yfirvöld munu fylgjast með þessu fyrirkomulagi og geta óskað eftir að koma í eftirlitsferðir hingað til lands.

Þeir aðla sem hyggjast sækja um leyfi til framleiðslu á Rússlandsmarkað skulu sækja um það bréflega til Matvælastofnunar með upplýsingum um hvaða vörutegundir er um að ræða. Ferlið getur tekið allt upp í 3 mánuði frá því að Matvælastofnun mælir með leyfi fyrir viðkomandi framleiðanda, þar til útflutningur getur hafist, að því tilskildu að rússnesk yfirvöld samþykkja leyfisveitinguna.

Matvælastofnun birtir og uppfærir lista yfir þá leyfishafa sem fengið hafa viðurkenningu rússneskra yfirvalda.

 

    Listi yfir framleiðendur sem hafa viðurkenningu fyrir Rússlandsmarkað


Efst á síðu

Umsóknarferli


Aðili sem er að sækja um nýtt vinnsluleyfi fær að uppfylltum kröfum um grunnvirki og búnað sem og hættugreiningu, útgefið skilyrt vinnsluleyfi , sem gefið er út til þriggja mánaða. Á þeim tíma  skal hann virkja innra eftirlit vinnslunnar og skráningar ásamt því að uppfæra gæðahandbók ef einhverjar breytingar eru gerðar á fyrirkomulagi vinnslunnar.


Matvælastofnun hefur gefið út eyðublöð og leiðbeiningar fyrir þá sem hyggjast sækja um starfs- eða vinnsluleyfi, ásamt gátlistum.

 

Efst á síðu

 

Upplýsingar um kröfur


Um fiskvinnslu og meðferð fisks gilda lög nr. 93/1995 um matvæli en að auki gilda sérlög um nr. 55/1998 um sjávarafurðir.


Ný matvælalöggjöf um hollustuhætti og eftirlit gekk í gildi í Evrópu árið 2006 og hefur nú verið innleidd hér á landi fyrir sjávarafurðir þannig að sama löggjöf gildir um sjávarafurðir í öllum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Löggjöfin fjallar um eftirlit og hollustuhætti í matvæla- og fóðurframleiðslu og á Íslandi verða reglugerðir ESB innleiddar orðréttar sem fylgiskjöl með sérstökum gildistökureglugerðum. Löggjöfin mun taka gildi gagnvart öðrum matvælum úr dýraríkinu 1. nóvember 2011.


Varðandi sjávarafurðir, sem í reglugerðartexta eru nefndar lagarafurðir og ná til bæði sjávar- og vatnafiska, eru þessar reglugerðir mikilvægastar varðandi kröfur til stjórnenda fiskvinnslu- og sjávarútvegsfyrirtækja:

  • Reglugerð nr. 102/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla.
  • Reglugerð nr. 103/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 852/2004 um hollustuhætti er varða matvæli almennt, þ.m.t. um innra eftirlit.
  • Reglugerð nr. 104/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 853/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli úr dýraríkinu. Í reglugerð EB nr. 853/2004 sem er fylgiskjal nr. I  við reglugerð 104/2010, Viðauka III, þætti VIII er fjallað um lagarafurðir en í þætti VII um lifandi samlokur. Skynmatsreglur sem áður voru í viðauka 9 í reglugerð 233/1999 eru nú í Viðauka A við þessa reglugerð nr. 104/2010.
  • Reglugerð nr.135/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 2073/2005 um örverufræðilegar viðmiðanir fyrir matvæli.
  • Fiskimjöl og lýsi sem ekki er ætlað til manneldis, flokkast nú sem fóðurvinnsla: Reglugerð nr. 107/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 183/2005 um hollustuhætti í fóðuriðnaði.


Yfirlit yfir hvar má finna kröfur í reglugerðum sem snúa að framleiðendum lagarafurða má finna hér.  


Meðal þeirra reglugerða sem fallnar eru úr gildi frá 1. mars 2010 eru:

  • Reglugerð nr. 233/1999 um hollustuhætti við meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafla og fiskafurða
  • Reglugerð nr. 260/1999 um veiðar, meðferð, vinnslu og dreifingu lifandi samloka
  • Reglugerð nr. 77/2001 um framleiðslu á fiskimjöli og lýsi
  • Reglugerð nr. 558/1997 um innra eftirlit með framleiðslu sjávarafurða.

Enn eru í gildi:

  • Reglugerð nr. 450/1997 um starfshætti faggiltra óháðra skoðunarstofa í sjávarútvegi.
  • Reglugerð nr. 536/2001 um neysluvatn.
  • auk ýmissa annarra reglugerða sem fjalla um kröfur til matvæla, s.s. um merkingar og aukefni.


Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað