Matvælastofnun hefur verið í samstarfi við
Rannsóknaþjónustuna Sýni og Matís um skipulag námskeiða fyrir starfsfólk í
fiskiðnaði á Íslandi. Það er á ábyrgð
matvælaframleiðanda að starfsfólk fá nauðsynlega þjálfun um mikilvægi
hreinlætis og góðra framleiðsluhátta í matvælafyrirtækjum. Það er mat Matvælastofnunar (MAST) að þekking
á þessum þáttum sé að mörgu leyti ábótavant og að þörf sé á auknu framboði af
námskeiðum. MAST leitaði því til aðila
sem hafa boðið upp námskeið á þessu sviði og hafa þeir í samráði við MAST sett
upp námskeið sem annars vegar eru ætluð almennum starfsmönnum í fiskvinnslu og
hinsvegar ætluð þeim er bera ábyrgð á innra eftirliti fyrirtækjanna. Upplýsingar um námskeiðin má finna á heimasíðum
Matís og Rannsóknarþjónustunnar
Sýni.
Matvælastofnum hvetur forsvarsmenn fyrirtækja í fiskiðnaði
sem og annarra matvælafyrirtækja til að kynna námskeiðsframboð þessara aðila og
stuðla að því að starfsfólk sæki námsskeiðin.
Í matvælareglugerðum ESB (852/2004, II viðauka,
XII. kafla) sem voru
innleiddar hér á landi 1. mars 2010 eru skýr ákvæði um að stjórnendur
matvælafyrirtækja skulu tryggja að starfsfólk fái nauðsynlega þjálfun í þáttum
er varða hollustuhætti í meðferð matvæla. Matvælastofnun ber að fylgja því
eftir í eftirliti að starfsfólk fái nauðsynlega þjálfun til að öryggi matvæla
sé tryggt.
Ítarefni:
Námskeið Rannsóknarþjónustunnar Sýnis
Námskeið Matís
Önnur námskeið
Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar heyrir undir
sjávarútvegsráðuneytið og hlutverk hennar er að skipuleggja fræðslustarfsemi
fyrir starfsfólk í fiskiðnaði. Nefndin stendur fyrir námskeiðahaldi
af ýmsu tagi, gefur út námsefni og kynningarbæklinga um sjávarútveg og stuðlar
að aukinni gæðavitund starfsfólks í sjávarútvegi með ýmsum hætti.