Minnispunktar fyrir seljendur:
- Líflömb af eftirtöldum svæðum skulu meðhöndluð af héraðsdýralækni með langverkandi sníkjudýralyfi fyrir flutning:
- Öxarfjarðarhólf (varnarhólf nr. 23)
- Sléttuhólf (varnarhólf nr. 24)
- Þingeyjarsýsluhluta Norðausturlandshólf (varnarhólf nr. 25)
- Kostnaður vegna lyfja skal greiddur af seljanda.
Þóknun og ferðakostnaður héraðsdýralæknis (eða dýralæknis í umboði hans) vegna lyfjameðhöndlunar greiðist úr ríkissjóði. (Sjá 8. gr. reglugerðar um flutning líflamba milli landsvæða, nr. 550/2008).
- Mikilvægt er að flutningstæki séu vel þrifin og sótthreinsuð í heimahéraði, áður en flutningsferð hefst. Seljandi skal krefja þann sem kemur að sækja lömbin um vottorð dýralæknis um þrif og sótthreinsun á flutningstækinu. Til að forðast smit sem mögulega getur borist með flutningstækjum er mælt með að seljendur fari ekki upp í flutningstækið og bílstjórar, og aðrir sem með bílnum koma, fari ekki inn í fjárhús. Ef það er hins vegar óhjákvæmilegt ættu þeir að vera íklæddir hreinum hlífðarfatnaði og hreinum skóm eða skóhlífum.
- Seljandi skal tilkynna skráningaraðila búfjár (Bændasamtökum Íslands) um sölu lambanna. (Sjá 4. gr. reglugerðar um merkingu búfjár, nr. 289/2005).
- Seljandi skal senda MAST upplýsingar um viðskipti með líflömb á sérstöku eyðublaði fyrir 1. desember, sjá eintak sem fylgir með þessu bréfi. Eyðublaðið má líka finna á heimasíðu MAST (www.mast.is).
- Athugið að mikilvægt er að fullorðnu fé af bænum sé lógað á sláturhúsi eða hausum skilað inn til sýnatöku. (Sjá 5. gr. reglugerðar um flutning líflamba milli landsvæða, nr. 550/2008 og 7. gr. reglugerðar um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar). Hafið samband við héraðsdýralækni um fyrirkomulag sýnatöku úr fé sem lógað er heima á þessu ári, ef um slíkt er að ræða.
Minnispunktar fyrir kaupendur:
- Mikilvægt er að flutningstæki séu vel þrifin og sótthreinsuð í heimahéraði áður en flutningsferð hefst. Sá sem sækir lömbin skal sjá til þess að flutningstækin séu þrifin og sótthreinsuð og skal hreinsunin tekin út og vottuð af héraðsdýralækni. Framvísa skal vottorðinu sé þess óskað. (Sjá 7. gr. reglugerðar um flutning líflamba milli landsvæða, nr. 550/2008). Til að forðast smit sem mögulega getur borist með flutningstækjum er mælt með að seljendur fari ekki upp í flutningstækið og bílstjórar, og aðrir sem með bílnum koma, fari ekki inn í fjárhús. Ef það er hins vegar óhjákvæmilegt ættu þeir að íklæðast hreinum hlífðarfatnaði og hreinum skóm eða skóhlífum.
- Kaupandi skal endurmerkja lömbin og tilkynna skráningaraðila (Bændasamtökum Íslands) um einstaklingsmerki þeirra og bæjarnúmer. (Sjá 4. gr. reglugerðar um merkingu búfjár, nr. 289/2005).
- Kaupandi skal senda MAST upplýsingar um viðskipti með líflömb á sérstöku eyðublaði fyrir 1. desember, sjá eintak sem fylgir með þessu bréfi. Eyðublaðið má líka finna á heimasíðu MAST (www.mast.is).
- Mælt er með að kaupandi fái dýralækni til að meðhöndla lömbin með langverkandi sníkjudýralyfi strax eftir heimkomu og ef kaupandi er á svæði þar sem skylt er að bólusetja gegn garnaveiki er minnt á að láta bólusetja öll ásetningslömb sem fyrst.
- Kaupandi ber allan kostnað af viðskiptum með líflömb, þ.m.t. flutning, sbr. þó sérákvæði hér að neðan þegar um er að ræða fjárskipti í kjölfar niðurskurðar vegna riðuveiki.
Til viðbótar fyrir þá sem eru að kaupa fé vegna fjárskipta
- Samanber 16. gr. reglugerðar nr. 651/2001 um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar greiðir ríkissjóður 90% flutningskostnaðar á líflömbum vegna fjárskipta. Flutningsaðili skal senda sérstakan reikning til Matvælastofnunar, stílaðan á Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, kt. 570269 1869, sem nemur 90 % af flutningskostnaði vegna líflamba viðkomandi kaupanda. Matvælastofnun sendir reikninginn áritaðan til ráðuneytisins, sem annast greiðsluna.
- Vegna hættu á að riðusmit viðhaldist eru fjáreigendur beðnir að virða eftirfarandi tilmæli:
- Fé skal ekki flutt til lífs frá fjárskiptabæjum á aðra bæi.
- Fé frá öðrum bæjum skal ekki tekið til lífs inn í hörðina.
- Ráðlegt er að kaupa ásetningslömb fyrstu 3-5 árin frá líflambasölubæjum, ekki setja á heimafædd lömb.
- Aðskilja skal eins og unnt er líffé frá fjárskptabæjum og fé annarra bæja í flutningum og við aðra meðferð fyrstu árin eða eins lengi og unnt er. Girðingum skal vel við haldið. Lóga skal fé sem lendir á flakki eða fer í aðra afrétti en hina eiginlegu.
- Fylgjast skal vel með heilsufari nýja stofnsins, halda skrá um öll vanhöld og veikindi og hafa samband við héraðsdýralækni ef kindur sýna grunsamleg einkenni.