|
Umsókn um gripagreiðslur - Rithæft |
Samkvæmt mjólkursamningi 2005-2012 miðast gripagreiðslur við allt að 27.400 árskýr en séu árskýrnar færri verður greiðsla á hvern grip hærri sem því nemur.
Hafa skal hafa í huga að sú heildartala sem reiknað verður frá er fjöldi árskúa sem skráðar eru í einstaklingskerfið MARK og sú tala getur vikið nokkuð frá forðagæslutölum.
Samkvæmt því sem segir í reglugerðinni fer hlutdeild hvers framleiðanda í heildarframlagi til gripagreiðslna á hverju verðlagsári eftir fjölda árskúa hans. Við ákvörðun á fjölda árskúa verður fyrsta viðmiðunartímabilið 1. september 2005 til 31. ágúst 2006 eins og það er skráð í MARK. Síðan verður fjöldi árskúa uppfærður á fjögurra mánaða fresti og breytingar á gripagreiðslum taka gildi tveimur mánuðum eftir þá uppfærslu.
Gripagreiðslur skerðast ef fjöldi árskúa á lögbýli er yfir þeim mörkum sem að neðan greinir, samkvæmt eftirfarandi:
|
Fjöldi árskúa |
Hlutfall greiðslu |
|
1-40 kýr |
100% |
|
41-60 kýr |
75% |
|
61-80 kýr |
50% |
|
81-100 kýr |
25% |
|
101 og fleiri kýr |
0% |
Samkvæmt þessum reglum fær bóndi sem er með 170 kýr ekki hærri gripagreiðslur en bóndi sem er með 100 kýr þar sem ekki eru greiddar neinar gripagreiðslur á kýr umfram 100. Ef fjöldi árskúa á lögbýli fer yfir 170 byrja gripagreiðslurnar að skerðast hlutfallslega þannig að heildargripagreiðslur á búi sem er með 171-180 kýr skerðast um 25% og þannig koll af kolli fyrir hverjar 10 árskýr sem umfram eru. Bú sem er með fleiri en 200 árskýr fá engar gripagreiðslur. Sjá meðfylgjandi töflu.
|
Fjöldi árskúa |
Skerðing |
|
>170 - 180 kýr |
25% |
|
>180 -190 kýr |
50% |
|
>190 - 200 kýr |
75% |
|
fleiri en 200 kýr |
100% |
Fyrstu 40 kýrnar á hverju lögbýli fá alltaf fulla greiðslu að 170 kúm. Þannig fær bú sem er með t.d. 30 kýr fullar greiðslur, bú með 55 kýr fær fullar greiðslur vegna fyrstu 40 og síðan 75% af næstu 15 kúnum. Bú með 76 kýr fær fullar greiðslur fyrir fyrstu 40, 75% greiðslur fyrir 20 næstu kýr og loks 50% greiðslur fyrir síðustu 16 kýrnar.
Upphæðin sem ætluð er í gripagreiðslur samkvæmt samningi um starfsskilyrði mjólkurframleiðslunnar er 396 milljónir króna á fyrsta ári greiðslna eða sem nemur 10% af heildarstuðningi til kúabænda. Þessi upphæð er verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs í janúar 2004 sem var þá 230 stig.
Hversu háar gripagreiðslurnar eru í raun fer eftir hversu margar kýr eru skráðar í gagnagrunninum MARK og hins vegar hver vísitalan er á hverjum tíma.