Fara á forsíðu
BEINGREIÐSLUR - GREIÐSLUMARK

Greiðslumark lögbýla er tiltekið magn mjólkur, mælt í lítrum, sem áveðið er fyrir hvert lögbýli, sbr. gr. 4.2. og veitir rétt til beinnar greiðslu úr ríkissjóði. Greiðslumark til framleiðslu mjólkur verðlagsárið 2003/2004 er 105 milljónir lítra. Beingreiðsla er stuðningur við framleiðslu og markað fyrir mjólkurafurðir, greiddur úr ríkissjóði til greiðslumarkshafa og skal svara til 47,1% af lágmarksverði á innleggsdegi.

Beingreiðslumark sauðfjárafurða er tiltekin fjárhæð, kr. 1.740 millj. á verðlagi í mars 1998. Greiðslumark lögbýla er tiltekinn fjöldi ærgilda, sem ákveðið er fyrir hvert lögbýli og veitir rétt til beinnar greiðslu úr ríkissjóði. Árið 2003 er greiðsla á ærgildi kr. 4.426. Verðbætur verða greiddar í október 2003.

Bændasamtök Íslands halda skrá yfir greiðslumark lögbýla (aðila að greiðslumarki) og handhafa réttar til beingreiðslna. Öll aðilaskipti og handhafaskipti þarf því að tilkynna til Bændasamtaka Íslands.

Handhafaskipti

Beingreiðslur greiðast ábúanda á lögbýli og á hverju lögbýli skal aðeins einn framleiðandi vera skráður handhafi. Þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða sem standa að búinu er þó heimilt að skrá þá sérstaklega. Sjálfstæður rekstraraðili telst sá einn sem hefur sjálfstætt virðisaukaskattsuppgjör. Tilkynna skal Bændasamtökum Íslands allar breytingar á því hver teljist vera handhafi beingreiðslna. Hér má nálgast eyðublöð til að tilkynna handahafaskipti og breytingar á reikningsnúmerum beingreiðslna.

Eyðublöð vegna handhafaskipta.


Aðilaskipti að greiðslumarki

Um aðilaskipti að greiðslumarki gilda annars vegar reglugerð um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og beingreiðslur til bænda verðlagsárið 2003/2004 nr. 441/2003 (greiðslumark í mjólk) og hins vegar reglugerð um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum og beingreiðslur 2001-2007 nr. 19/2001.

Tilkynning um aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur

Samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 441/2003 eru heimil aðilaskipti að greiðslumarki til mjólkurframleiðslu á milli lögbýla. Sé ábúandi annar en eigandi/eigendur þess þarf samþykki beggja/allra fyrir ráðstöfun greiðslumarks frá lögbýli. Leiguliða er heimilt að kaupa greiðslumark á lögbýli og skal það sérstaklega skráð á nafn hans. Leiguliða er heimilt að selja sérskráð greiðslumark án samþykkis jarðareiganda. Þó skal jarðareigandi eiga forkaupsrétt við ábúðarlok leiguliða á því markaðsverði sem síðast liggur fyrir skv. könnun sem Bændasamtök Íslands annast.

Aðilaskipti greiðslumarks skulu tilkynnt á þar til gerðum eyðublöðum sem Bændasamtök Íslands láta í té og liggja frammi á skrifstofum búnaðarsambanda. Með tilkynningu um aðilaskipti að greiðslumarki skal fylgja staðfesting um eignarhald á lögbýlinu. Þá skal seljandi leggja fram þinglýsingarvottorð fyrir það lögbýli sem selt er frá og skriflegt samþykki allra veðhafa fyrir sölunni. Tilkynningar um aðilaskipti fyrir verðlagsárið 2003-2004 skulu hafa borist Bændasamtökum Íslands í síðasta lagi 20. júní 2003 til að þau taki gildi á verðlagsárinu. Aðilaskiptin taka fyrst gildi þegar staðfesting Bændasamtaka Íslands liggur fyrir.

Eyðublöð vegna aðildaskipta.


Aðilaskipti að greiðslumarki í sauðfé

Samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 19/2001 er nú heimilt að flytja greiðslumark í sauðfjárframleiðslu milli lögbýla.

Tilkynningu um flutning skal senda Bændasamtökum Íslands fyrir 15. janúar á því ári sem flutningur tekur gildi.

Eyðublöð vegna aðildaskipta.

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað