Öskufall
Eldgos í Grímsvötnum 22. maí 2011 Matthew Roberts - Veðurstofa Íslands
|
-
Tryggja öllum
dýrum hreint drykkjarvatn, svo sem kostur er. Sjá til þess að skepnur á
útigangi hafi aðgang að rennandi vatni eða færa þeim hreint vatn
reglulega og koma í veg fyrir að þær drekki úr stöðnu vatni. Kanna
ástand vatnsbóla og sjá til þess að yfirborðsvatn berist ekki í þau.
-
Forða skepnum undan öskufalli, hýsa þær ef aðstæður eru fyrir hendi eða flytja annað.
-
Takmarka beit á
þeim svæðum þar sem öskufall er mikið, gefa lystugt fóður vel og oft, og
tryggja aðgang að selenríkum saltsteinum eða stömpum. Gera ráðstafanir
til að koma í veg fyrir að aska falli á fóðrið.
-
Hafa daglegt
eftirlit með öllum skepnum, sér í lagi lambfé og folaldshryssum. Hryssum
og ám getur verið hætt við klumsi eða doða og ungviðinu við skorti á
E-vítamíni og seleni.
-
Breiða yfir fiskeldisker, þar sem því verður við komið og tryggja gott vatnsstreymi í kerin.
-
Sama gildir um gæludýr og aðrar skepnur, að mikilvægast er að þau drekki ekki úr stöðnu vatni og halda þeim sem mest innandyra.
|
Flóðahætta
-
Meta aðstæður og ákveða hvort skepnum sé betur borgið innanhúss eða utan.
-
Tryggja eftir því sem kostur er að skepnur á útigangi geti forðað sér undan flóði.
Slys eða sjúkdómar
-
Hafa
samband við dýralækni ef skepnur slasast eða verða veikar. Reynt er að
tryggja að dýralæknar komist þangað sem nauðsyn krefur.
Gosefni
sem berast með vindi geta mengað gróður og vatn og borist ofan í
skepnur. Öskukornin eru oddhvöss eins og örsmá glerbrot. Þau særa augu,
öndunarfæri og meltingarveg. Þau geta valdið niðurgangi, tannsliti og
fótsæri. Flúor loðir við yfirborð kornanna, þeim mun meiri sem askan er
fínni. Því er fín aska langt frá eldstöð síst minni hætta skepnum en
aska sem fellur nær.
Flúor
bindur kalsíum í torleyst sambönd og stuðlar þannig að kalkskorti. Bráð
eitrun getur valdið doða í ám og kúm, og klumsi í hryssum, einkum seint
á meðgöngu og um burð eða köstun. Áhrif langvinnrar eitrunar er gaddur á
jöxlum, sem gerir skepnunum erfitt að bíta, tyggja og jórtra, og
beinmyndanir á fótleggjum, sem valda helti. Önnur eitrunarhætta, sem við
má búast í tengslum við eldgos, er vegna koltvísýrings í gosgufum. Hann
sest í lægðir og getur valdið köfnun.
Hættan
vegna eldgoss af þessari gerð er breytileg eftir árstíð, dýrategund,
aldri, magni flúors og annarra efna í öskunni og hvert askan berst.
Hindra skal ef unnt er öskufall á skepnurnar og í fóður þeirra og sjá
til þess að þær hafi aðgang að hreinu drykkjarvatni. Ef aska fellur á
óslegið tún á heyskapartíma, er vissara að bíða með slátt þar til rignt
hefur, sama gildir um beitiland. Flúorinn þynnist fljótt og
eitrunarhætta dvínar, þegar rignir. Falli flúormenguð aska á hey þarf að
meta magn flúors, sem gæti borist í skepnurnar og taka ákvörðun um
nýtingu heysins á grundvelli þess.
Þolmörk búfjár fyrir flúori í fóðri og drykkjarvatni
Ekki
er fullkomið samræmi í vísindagreinum hvað varðar þolmörk búfjár
gagnvart flúori í fóðri og drykkjarvatni en algengast er að fyrir
nautgripi séu mörkin talin vera 30-40 mg/kg þurrefnis í fóðri og 2.5-4.0
mg/lítra drykkjarvatns. Þolmörk fyrir hross eru af sumum talin vera
svipuð og fyrir nautgripi en aðrir telja þau vera mun lægri. Þolmörk hjá
sauðfé eru oftast sett við 70-100 mg/kg þurrefnis í fóðri og 12-15
mg/lítra drykkjarvatns. Ef magn flúors í fóðri og drykkjarvatni er yfir
mörkum í langan tíma geta komið fram einkenni í tönnum og beinum. Hafa
ber í huga að ýmsir þættir hafa áhrif á þolmörkin, s.s. aldur dýrsins,
almennt næringar- og heilbrigðisástand og streita. Ung dýr, dýr í lélegu
ásigkomulagi og dýr sem eru undir álagi vegna lélegs aðbúnaðar eða
annarra þátta eru mun viðkvæmari.
Bráð
eituráhrif geta komið fram í nautgripum, sauðfé og hrossum ef magn
flúors í þurrefni í fóðri fer yfir 250 mg/kg. Algengustu einkenni eru
doði í kúm og kindum, og klums í hryssum, en einnig ýmis einkenni frá
taugakerfi og meltingarfærum.
Ítarefni
- frétt frá 27.05.11
- frétt frá 26.05.11
- frétt frá 26.05.11
Ábendingar til bænda vegna eldgoss í Grímsvötnum - frétt frá 25.05.11
Lítil efnamengun í fyrstu ösku - frétt frá 22.05.11