Fara á forsíðu
BEINGREIÐSLUR
Garðyrkja
Reglugerð um beingreiðslur í garðyrkju árið 2007

Reglugerð um beingreiðslur í garðyrkju árið 2006

Mjólk
Beinar greiðslur í mjólk eru greiddar til handhafa eftir eftirfarandi reglum samkvæmt neðangreindri reglugerð:

Einingaverð beingreiðslna reiknast þannig að heildarupphæð beingreiðslna verðlagsársins er deilt með heildargreiðslumarkinu.
Einingaverðið breytist mánaðarlega miðað við vísitölu neysluverðs.
Heildargreiðslumarkið er ákveðið árlega með reglugerð, heildarbeingreiðslur eru ákveðnar í fjárlögum á grundvelli samnings um starfsskilyrði mjólkurframleiðslunnar 2005-2012.

A-hluti: 47,67% Greiðist á greiðslumark óháð framleiðslu, að því tilskyldu að hún nái 90% af greiðslumarki verðlagsársins.
B-hluti: 35,45% Er greiddur á framleiðslu innan greiðslumarks. Greitt er fyrsta virkan dag hvers mánaðar fyrir innlegg næstsíðasta mánaðar.
C-hluti: 16,88% Er álagsgreiðsla greidd á framleiðslu átta mánuði ársins. 4/30 hlutar eru greiddir í nóvember út á innlegg í september, 2/30 hlutar eru greiddir í desember út á innlegg í október, 16/30 hlutar eru greiddir í janúar-apríl út á innlegg í nóvember-febrúar. Einingaverðið er breytilegt í hverjum mánuði í réttu hlutfalli við dagafjölda mánaðarins og í öfugu hlutfalli við heildarinnlegg mánaðarins á landsvísu, 3/30 hlutar eru greiddir í september út á innlegg í júlí, 5/30 hlutar eru greiddir í október út á innlegg í ágúst. Greitt er fyrsta virkan dag hvers mánaðar fyrir innlegg næstsíðasta mánaðar.

Að því marki sem beinar greiðslur ganga ekki út eftir uppgjör innan greiðslumarks skal greitt út á framleiðslu umfram greiðslumark þó þannig að fyrstu 4% umfram greiðslumark njóti forgangs.


Reglugerð um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og beingreiðslur til bænda verðlagsárið 2008-2009


Sauðfé
Beingreiðsla greiðist úr ríkissjóði til handhafa í samræmi við greiðslumark lögbýlisins eins og það er á hverjum tíma. Beingreiðsla hinn 1. febrúar 2003 var kr. 4.426 á hvert ærgildi. Verðbætur eru reiknaðar árlega í október. Til að fá fulla beingreiðslu þarf handhafi að eiga að lágmarki 0,6 vetrarfóðraðar kindur að hausti fyrir hvert ærgildi greiðslumarks, á komandi ári. Beingreiðsla greiðist til handhafa og greitt er með 10 jöfnum mánaðarlegum greiðslum 1. hvers mánaðar nema hvað janúargreiðsla er greidd með febrúargreiðslu.

Reglugerð um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum, beingreiðslur, uppkaupaálag og jöfnunargreiðslur 2001-2007