 |
Frá og með 1. mars síðastliðnum er óheimilt að flytja til landsins eða markaðsetja matvæli, þar með talin fæðubótarefni sem innihalda lyf. Innflutningseftirlit Matvælastofnunar og markaðseftirlit Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga mun því hér eftir taka á þessu máli. Lyfjastofnun hefur það hlutverk að skera úr um hvað telst vera lyf. |